Forystufólk úr fjórum flokkum vill að Katrín fái stjórnarmyndunarumboðið „og kannski eitt stykki buff“

Bjarni Bene­dikts­son fundar með for­seta á Bessa­stöðum.

Forystufólk úr fjórum flokkum vill að Katrín fái stjórnarmyndunarumboðið „og kannski eitt stykki buff“

For­ystu­fólk fjög­urra flokka á Alþingi hefur talað fyrir því í dag að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, taki við stjórn­mynd­un­ar­um­boð­inu frá for­seta og reyni að mynda starf­hæfa rík­is­stjórn.

Smári McCarthy, umboðs­maður Pírata, Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar og Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar lýstu þess­ari skoðun sinni á RÚV í dag. Þá tók Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, odd­viti Við­reisnar í Suð­ur­vest­ur­kjör­dæmi, undir þessa kröfu í Twitter-færslu. „Blasir við að @katrinjak fái stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið hjá for­seta. Og kannski eitt stykki buff með,“ skrifar hún. Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar hefur ekki viljað segja til um hver hann vilji helst að fái umboðið. 

Í frétta­til­kynn­ingu frá fram­kvæmda­stjóra þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins er haft eftir Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni flokks­ins, að hann úti­loki ekk­ert um það hvert fram­haldið verði í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum. ,Ég tel að sam­töl und­an­far­inna daga hafi leitt í ljós að það væri afar óvar­legt að leggja af stað með þann mál­efna­grunn sem um er rætt og nauman meiri­hluta inn í kjör­tíma­bilið.  Margt segir mér að aðstæður kalli á rík­is­stjórn með breið­ari skírskotun og sterk­ari meiri­hluta en þann sem þessir þrír flokkar geta boðið.  Ég úti­loka ekk­ert fyr­ir­fram í þeim efnum,” segir Bjarni sem mun hitta Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands á fundi á Bessa­stöðum klukkan fimm.

Katrín Jak­obs­dóttir hefur lýst sig reiðu­búna að reyna að mynda starf­hæfa rík­is­stjórn, en sam­kvæmt könnun sem gerð var skömmu fyrir kosn­ingar vilja um 40 pró­sent lands­manna helst að hún verði for­sæt­is­ráð­herra. Vísir greindi frá því áðan að Bjarni Bene­dikts­son hefði haft sam­band við Katrínu en sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er eng­inn áhugi á því meðal for­ystu­fólks í Vinstri grænum að ganga til stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár