Forsetinn notar baráttu við ISIS til að auka völd sín

Erdogan Tyrk­lands­for­seti eykur smám saman völd sín með þeirri rétt­læt­ingu að berj­ast þurfi við ISIS og Kúrda. Fjöl­miðla­mönnum er sýnd meiri harka en áður. Tengsl trú­ar­bragða og stjórn­mála aukast, þrátt fyrir sögu­legan aðskilnað, og per­sónu­dýrkun á for­set­anum eykst.

Forsetinn notar baráttu við ISIS til að auka völd sín
Mustafa Kemal Atatürk „Tyrkjafaðir“ sleit tengslin milli trú­ar­bragða og stjórn­mála á fyrri hluta 20. aldar og er faðir hins ver­ald­lega ríkis Tyrk­lands.

Ég tala af hrein­skilni. Útlend­ingar elska olíu, gull, dem­anta og hið ódýra vinnu­afl í heimi, múslima. Þeir elska átök, rifr­ildi og deil­urnar í Mið-Aust­ur­löndum. Trúið mér, þeim líkar ekki við okkur, þeir þykj­ast vera vinir okkar, en vilja okkur dauð. Þeir vilja sjá börnin okkar deyja.“
Þessi orð lét valda­mesti maður Tyrk­lands, Racip Tayyip Erdogan for­seti, falla fyrir um ári síðan, þegar hann hélt ræðu á fundi þar sem sam­tök múslima­ríkja réðu ráðum sínum. Á fund­inum hvatti hann ríkin sem tóku þátt og önnur ríki múslíma til þess að leysa vand­mál Mið-Aust­ur­landa með því að standa saman. Aðeins með þeim hætti væri hægt að stöðva deil­urnar í Palest­ínu og blóð­baðið í Sýrlandi sem nú hefur teygt sig til höf­uð­borgar Frakk­lands, þar sem vel á annað hund­rað manns létu lífið í sam­hæfðum árásum hryðju­verka­manna þann 13. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Ráðist á fjölmiðla

Ástandið í Tyrk­landi hefur orðið flókn­ara en áður á und­an­förnum mán­uðum. Völd Erdogans for­seta hafa verið að aukast og flestir frétta­skýrendur eru á því að hann sé að færa Tyrkland í átt til síauk­inna per­sónu­legra valda. Árásir á fjöl­miðla og fjöl­miðla­fólk hafa sett svip sinn á tyrk­neskt sam­fé­lag að und­an­förnu. Í grein sem birt­ist í The New York Times um miðjan sept­em­ber kemur fram að árásir á fjöl­miðla­menn sem hafa gagn­rýnt stjórn­völd, hafa 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár