Forseti Filippseyja kallar Obama „hóruunga“

Forseti Fil­ipps­eyja, Rodrigo Duterte, hefur heim­ilað aftökur án dóms og laga í stríði sínu gegn eit­ur­lyfjum. Óút­reikn­an­leg hegðun hans og nú niðr­andi ummæli um valda­mesta mann í heimi valda ekki aðeins upp­lausn á götum lands­ins, heldur einnig á hluta­bréfa­mörk­uðum.

Forseti Filippseyja kallar Obama „hóruunga“
Tveir for­setar í hár saman

Rodrigo Duterte hefur heim­ilað aftökur á þús­undum án dóms og laga í stríði sínu gegn fíkni­efnum. Eftir að Obama gagn­rýndi aðferðir hans missti Duterte stjórn á sér á frétta­manna­fundi og kall­aði Obama Banda­ríkja­for­seta hóru­unga.

Hegðun fil­ippseyska for­set­ans er nú farin að bitna á mörk­uðum lands­ins, þar sem nú tap­ast hund­ruðir millj­óna doll­ara dag hvern.

Hluta­bréfa­mark­aður Fil­ipps­eyja heldur áfram að falla í kjöl­far blóð­ugs stríðs for­seta lands­ins gegn vímu­efnum. Hefur hann hefur heim­ilað lög­reglu­mönnum að taka meinta eit­ur­lyfja­sala, not­endur og smygl­ara af lífi án dóms og laga og hafa í það minnsta 2.400 manns verið drepnir síðan þessi stefna var tekin. Hluta­bréf á mörk­uðum eyj­anna féllu um 1,3% í kjöl­far ummæla Duerte, þar sem hann kall­aði Obama Banda­ríkja­for­seta hóru­unga. Obama aflýsti í kjöl­farið fundi með for­set­anum.

„Við munum halda áfram og ég mun halda áfram og mér er skít­sama um þá sem tjá sig um hegðun mína. Ég fellst ekki á þá for­sendu að ein­hver sé æðri mér,“ sagði Duerte í upp­námi á fundi með blaða­mönnum.

Markaðir hafa fallið um 6% frá 21. júlí, síðan hið blóð­uga átak Duerte hófst. Mikill upp­gangur hefur verið á hluta­bréfa­mörk­uðum Fil­ipps­eyja und­an­farin miss­eri, og setur þessi skyndi­lega lækkun því fjár­mál lands­ins í tölu­vert upp­nám. Erlendir fjár­festar eru nú byrj­aðir að draga sig út úr land­inu, en þeir seldu hluta­bréf fyrir 58 millj­ónir doll­ara í gær, og hafa selt fyrir 333 millj­ónir síð­ustu 11 daga eftir því sem fjár­magn heldur áfram að flæða úr land­inu.

Hegðun Duterte er því farin að reyn­ast mörk­uðum lands­ins fjötur um fót, en landið hefur verið mjög vin­sælt meðal fjár­festa vegna eins mesta hag­vöxts í allri Asíu upp á síðkastið. „Þessi síð­asta upp­á­koma veldur ákveðnum áhyggjum, varð­andi óút­reikn­an­lega hegðun Duterte for­seta, sem hefur mjög skað­leg áhrif og getur á end­anum haft áhrif á efna­hag og við­skipti,“ sagði Jonathan Ravelas, yfir­maður mark­aðs­stefnu BDO Unibank, sem er stærsti lána­drott­inn Fil­ipps­eyja.  

„Sniðugir fjár­festar ættu að nýta sér þetta og safna eignum, því þetta ástand er allt byggt á til­finn­ingarökum,“ sagði Rafael Palma Gil, yfir­maður Rizal Commercial Banking Group í Manila. „Fyrir utan eld­fimar yfir­lýs­ingar og morð í eit­ur­lyfja­stríðum þá hafa fjár­festar kunnað að meta efna­hags­stefnu Duterte, í það minnsta hingað til,“ sagði hann og bætti því við að hann bygg­ist við því að mark­að­ur­inn myndi jafna sig.

Þegar Obama var spurður út í ummælin sagði hann Duterte vera „lit­ríkan náunga“ og að stríðið gegn fíkni­efnum væri erfið, hins vegar væri það stefna Banda­ríkj­anna að fara eftir reglum rétt­ar­kerf­is­ins þegar tekið væri á þeim málum. For­set­arnir hitt­ust þó stutt­lega í gær og tók­ust í hendur, en þeir eru báðir á Asean ráð­stefn­unni í Laos, þar sem leið­togar helstu ríkja Suð­austur-Asíu funda þessa dag­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár