Fórnarlamb íslenska læknisins: „Loksins kom réttlætið“

Lækn­ir­inn Emma Caroline Fernandez, sem starf­aði á Selfossi, var dæmd í vik­unni fyrir að ráð­ast á konu í Ung­verja­landi. Þol­and­inn kvaðst hafa verið orðin úrkula vonar.

Fórnarlamb íslenska læknisins: „Loksins kom réttlætið“

Konan sem íslenski lækn­ir­inn Emma Caroline Fernandez hefur verið dæmd fyrir hafa ráð­ist á í Ung­verja­landi seg­ist mjög ánægð með nið­ur­stöðu dóms­ins í sam­tali við Stundina. Fórn­ar­lambið, Funkebi Brambaifa, starfar sem læknir í heima­landi sínu, Nígeríu, og náði Stundin tali af henni rétt í þessu en hún frétti af nið­ur­stöðu dóms­ins í gær. „Auðvitað er ég glöð. Þetta var komið á þann stað að ég hélt að eng­inn myndi gera neitt af því ég er svört. Ég var búin að gef­ast upp, því þetta gerð­ist árið 2012. Núna er árið 2016 og þetta er eig­in­lega smá yfir­þyrm­andi, en loks­ins kom rétt­lætið,“ segir Funkebi.

Emma var á mið­viku­dag dæmd í fimm ára skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir alvar­lega lík­ams­árás en að sögn lög­manns hennar, Ingi­bjargar Ólöfu Vil­hjálms­dóttur, hefur dóm­inum verið áfrýjað. Emma var dæmd fyrir að hafa árið 2012 byrlað Funkebi svefn­lyf og barið hana í fram­hald­inu tví­vegis í höf­uðið með hamri. 

Ekki náð­ist í Emmu við vinnslu fréttir en þegar Stundin ræddi við hana í októ­ber vildi hún ekki tjá sig um málið utan þess að hún lýsti sig sak­lausa.

Málið hefur verið nokkurn tíma í vinnslu út í Ung­verja­landi en Emma tjáði ekki yfir­mönnum sínum við lyf­lækn­inga­deild Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­lands um alvar­leika brots­ins. Hún starf­aði við lækn­ingar allt fram til síð­ast­lið­ins októ­ber­mán­aðar þegar greint var frá mál­inu í íslenskum fjöl­miðlum. Þá fór hún í launað leyfi. Hjörtur Krist­jáns­son, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga við HSU, segir í sam­tali við Stundina að hún hafi verið ráðin tíma­bundið til ára­móta og hafi hún ekki sóst eftir starf­inu að nýju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár