Fordæma aðferð sem íslensk yfirvöld nota

Útlend­inga­stofnun notar umdeilda tann­grein­ing­ar­að­ferð til að meta aldur flótta­barna. Samtök tann­lækna í Bret­landi for­dæma hug­myndir um að taka aðferð­ina upp þar í landi og kalla hana bæði sið­lausa og óvið­eig­andi. Þarlend hjálp­ar­sam­tök sem vinna með flótta­mönnum taka undir gagn­rýn­ina.

Fordæma aðferð sem íslensk yfirvöld nota
16 eða 18 ára? Í Bret­landi fara nú fram rök­ræður um það hvort rétt­læt­an­legt sé að nota grein­ingu á tönnum til að meta aldur ungra flótta­manna. Íslensk yfir­völd reiða sig á aðferð­ina, þrátt fyrir að hafa verið gagn­rýnd harð­lega fyrir það. Mynd: Wikimedia Commons

Samtök breskra tann­lækna (British Dental Association) for­dæma hug­mynd þing­manns breska íhalds­flokks­ins, David Davies, um að taka upp tann­grein­ing­ar­að­ferð þar í landi, til að meta aldur flótta­barna. Breska blaðið Independent fjallar um þetta á vef sínum. Segja sam­tökin aðferð­ina bæði óvið­eig­andi og sið­lausa. Þar að auki sé ómögu­legt að segja með vissu til um aldur ein­hvers, með því að nota tann­grein­ing­ar­að­ferð­ina.

Ummælin lét þing­mað­ur­inn fjalla í kjöl­far þess að hafa séð myndir af inn­flytj­enda­börnum á leið úr Calais-flótta­manna­búð­unum til Bret­lands á mánu­dag. Sagði hann þau sum hver ekki líta út fyrir að vera börn. Frönsk yfir­völd ráð­gera að loka flótta­manna­búð­unum í Calais á næstu vikum og hafa bresk yfir­völd skuld­bundið sig til að taka á móti fleiri flótta­börnum vegna þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár