Arfleifð Bjarna sem fjármálaráðherra

Bjarni Bene­dikts­son létti sköttum af fjár­sterk­ustu hópum íslensks sam­fé­lags meðan skatt­byrði lág­tekju- og milli­tekju­fólks jókst. Staða rík­is­sjóðs er sterk, einkum vegna eigna upp á hund­ruð millj­arða sem kröfu­hafar afhentu rík­inu í tengslum við losun fjár­magns­hafta.

Arfleifð Bjarna sem fjármálaráðherra
Arfleifð Bjarna í fjár­mála­ráðu­neyt­inu Bjarni Bene­dikts­son var umdeildur fjár­mála­ráð­herra en skil­aði góðu búi, þökk sé stöð­ug­leika­fram­lögum frá kröfu­höfum. Mynd: Pressphotos

Þegar Bjarni Bene­dikts­son tók við lyklunum að fjár­mála­ráðu­neyt­inu árið 2013 var efna­hagslægð kreppu­ár­anna á enda. Hag­vöxtur var með því hæsta í Evrópu, ferða­þjón­ustan og útflutn­ings­grein­arnar stóðu í blóma og tals­vert svig­rúm hafði mynd­ast í rík­is­fjár­málum eftir að rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Stein­gríms J. Sig­fús­sonar hafði unnið bug á 214 millj­arða fjár­laga­halla með nið­ur­skurði og skatta­hækk­unum. Skulda­staða heim­ila og fyr­ir­tækja hafði jafn­framt batnað jafnt og þétt frá 2010 og glíman við eft­ir­köst hruns­ins var langt komin þótt enn ætti eftir að losa fjár­magns­höft og ljúka upp­gjöri á slita­búum föllnu bank­anna. 

Þrennt stendur upp úr þegar rýnt er í arf­leifð Bjarna Bene­dikts­sonar sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á tíma­bil­inu 2013 til 2017. Í fyrsta lagi var rekin hægrisinnuð skatta­stefna; byrðum var létt af hátekju­hópum, stór­eigna­fólki og útgerð­ar­fyr­ir­tækjum en velt í auknum mæli yfir á lág­tekju- og milli­tekju­hópa. Í öðru lagi var á átt­unda tug millj­arða af opin­beru fé varið til höf­uð­stólslækk­unar á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum. Tvær skýrslur sem fjár­mála­ráðu­neytið vann að beiðni Alþingis sýna að þessir fjár­munir runnu að miklu leyti til tekju­hæstu og eigna­mestu hópa íslensks sam­fé­lags. Í þriðja lagi var losun fjár­magns­hafta hrint í fram­kvæmd og samið við kröfu­hafa fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja um að afhenda rík­inu verð­mæti upp á hund­ruð millj­arða í formi svo­kall­aðra stöð­ug­leika­fram­laga. Nú er unnið að því að koma eign­unum í verð og nota sölu­and­virðið til að grynnka á skuldum rík­is­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár