Fimmti flokkurinn og örlögin

Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmála­fræði, ræðir örlög fimmta flokksins í íslenskum stjórn­málum og veltir fyrir sér hvort hætta steðji að ungu flokkunum þremur á Alþingi.

Píratar
Píratar Eru á þingi annað kjör­tíma­bilið í röð. Mynd: Pressphotos

Ekki koma þær nú svo ýkja mjög á óvart, fréttirnar sem berast af deilum í þing­flokki Pírata um innra skipulag flokksins. Allt er það hefðinni samkvæmt. Stjórnmála­saga Íslands geymir aragrúa flokka sem hafa lagt upp með að skora stjórnmála­kerfið á hólm. Margra sem einkum og sér í lagi hafa ætlað sér að bjóða upp á nýrri og lýðræðislegri vinnu­brögð, gjarnan með flatara skipulagi en gerist og gengur í hefð­bundnu flokkunum. Allt er það sosum nægjanlega göfugt. Og bara gott að einhverjir taki að sér að stunda tilraunir í íslenska stjórnmála­eldhúsinu – stjórnmála­fræðingurinn þakkar ástsam­lega fyrir það. 

Ásta Guðrún Helga­dóttirSagði af sér sem þing­flokks­for­maður Pírata vegna óskýrrar og klof­innar hlut­verka­skipt­ingar.

En sagan segir okkur þó samt að þegar til lengdar lætur þá þrýstist það jafnan í hefð­bundnari farvegi, einfald­lega vegna þess að gamal­reynt skipulag í stjórnmála­starfi er alla jafna til nokkurs hægðar­auka og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár