Langfámennasta þjóðin til að komast á EM

Íslend­ingar eru aðeins einn sjötti af fjölda þeirrar þjóðar sem hingað til hefur verið fámenn­ust á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu karla. Erlendir fjöl­miðlar fjalla um ótrú­legan og sögu­legan árangur.

Langfámennasta þjóðin til að komast á EM
Karla­lands­liðið fagnar Lyk­ill­inn að baki far­sæld íslenskrar knatt­spyrnu er íþrótta­grein­endum hug­leikin eftir ótrú­legan árangur í und­ankeppni EM. Hér sjást Aron Einar Gunn­ars­son lands­liðs­fyr­ir­liði og félagar hans fagna sigrinum gegn Hollandi á fimmtu­dag. Mynd: AFP

Ísland er lang­fá­menn­asta þjóðin til að kom­ast á Evr­ópu­meist­ara­mót karla í knatt­spyrnu. Fram að þessu hefur fámenn­asta þjóðin til að taka þátt í mót­inu verið Slóvenía. Íbúar Slóveníu eru sex sinnum fleiri en íbúar Íslands. 

Í frétt breska blaðs­ins Guardian segir frá því að Ísland hafi „skráð sig í sögu­bæk­urnar“. 

Fámennstu þjóð­irnar á EM í knatt­spyrnu:

Ísland (330.610)

Slóvenía (1.988.292)

Lettland (2.165.165)

Króatía (4.470.534)

Írland (4.832.765)

* Tölur frá 2014, nema fyrir Ísland

Þess ber þó að geta að sú breyt­ing var gerð á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu 2016 að liðum var fjölgað úr 16 í 24 og er því auð­veld­ara að kom­ast á EM en áður í sög­unni. Fyrir árið 1996 voru keppn­isliðin ein­ungis átta. 

Stjórnuninni þakkað fyrir

Í pistli Michael Yokhin á íþrótta­vefnum Soccernet segir frá því að „heim­ur­inn fylgist furðu lost­inn með liði Lars Lagerbäcks fagna ótrú­legum árangri fyrir EM 2016 með tvo leiki óspil­aða.“

Lars Lagerbäck
Lars Lagerbäck Þjálfari karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu er orð­inn þjóð­hetja á Íslandi, en hann hættir störfum eftir EM 2016.

„Maður gæti freist­ast til að tala um að ein­stök „gull­kyn­slóð“ hefði gert þetta mögu­legt. Hins vegar er ekk­ert fjær sann­leik­anum,“ segir í pistl­inum. „Þetta örsmáa land - það fámenn­asta til að senda lið á EM, með ein­ungis 330 þús­und íbúa - nýtur knatt­spyrnu­legs árang­urs þökk sé fram­úr­skar­andi stjórnun.“

Þetta rímar við for­síðu Frétta­blaðs­ins í dag en þar er Lagerbäck þakk­aður sig­ur­inn með fyr­ir­sögn­inni „Takk Lars“. Lars hefur hins vegar ákveðið að hætta störfum fyrir íslenska lands­liðið eftir Evr­ópu­meist­ara­mótið á næsta ári.

Fjárfesting í hæfileikum

Í fyrr­nefndum pistli á Soccernet.com er hins vegar líka farið yfir lang­tíma­or­sakir góðs árang­urs. 

„Hæfi­leik­arnir munu streyma áfram vegna þess að Ísland skap­aði frá­bærar þjálf­un­ar­að­stæður og fjár­festir mikið í ung­linga­þjálfun. Þetta lang­tíma­þró­un­ar­verk­efni hófst um ald­ar­mótin. Áður komu veð­ur­að­stæður í veg fyrir að börn spil­uðu fót­bolta á löngum vetr­ar­mán­uðum. En núna eru meira en 20 gervi­gras­vellir í fullri stærð á víð og dreif um landið. Og, það sem er jafn­mik­il­vægt, meira en 150 litlir vellir þar sem ungir krakkar geta spilað allan árs­ins hring,“ skrifar Yokhin. Hann bendir einnig á það sem hann nefnir „þjálf­ara­bylt­ing­una“.

Bylting í þjálfun

„Jafnvel enn merki­legri er þjálf­ara­bylt­ingin á Íslandi. Undir for­ystu Sigurðar Ragnars Eyj­ólfs­sonar, sem tók við stjórn mennt­un­ar­mála hjá KSÍ árið 2002, fengu hund­ruð sér­fræð­inga skír­teini frá UEFA (Knatt­spyrnu­sam­bandi Evrópu). Merki­legt nokk tóku 630 þjálf­arar þátt í mis­mun­andi nám­skeiðum UEFA árið 2010, sem jafn­gildir 0,2 pró­sent af mann­fjöld­anum. Ung­menna­þjálf­urum voru borguð góð laun. Starfið varð álit­legt og gerð var krafa til allra klúbba um að ráða vel hæfa þjálf­ara fyrir yngri liðin til þess að fá skír­teini frá KSÍ.“

Nið­ur­staðan í pistl­inum er að þrátt fyrir að Lars Lagerbäck sé á förum hald­ist sam­fella í íþrótta­starf­inu með lang­tíma­á­ætl­unum og störfum Heimis Hall­gríms­sonar, sem er lands­liðs­þjálf­ari við hlið Lars. „Hann mun taka alfarið við kefl­inu eftir EM og þar með tryggja sam­fellu. Lang­tíma­hugsun er ein­kenn­andi fyrir alla þætti knatt­spyrnu á Íslandi og það getur ein­ungis leitt til áfram­hald­andi árang­urs.“

Sigursælt kvennalandslið
Sig­ur­sælt kvenna­lands­lið Íslenska kvenna­lands­liðið í knatt­spyrnu hefur leikið á síð­ustu tveimur Evr­ópu­meist­ara­mótum. Hér sést liðið frá 2013.

Ótrúleg afrek miðað við höfðatölu

Þá er fjallað um að árang­ur­inn í und­ankeppni EM sé ein­ungis rús­ínan í pylsu­end­anum og bent á for­sög­una. Ísland vann silfur í hand­bolta á Ólymp­íu­leik­unum árið 2008. Kvenna­liðið í knatt­spyrnu hefur keppt á tveimur síð­ustu Evr­ópu­mótum. Karla­liðið í körfu­bolta keppir nú á Evr­ópu­mót­inu. 

„Fyrir land sem er fámenn­ara en Lúx­em­borg er þetta ótrú­legt afrek. Er Ísland mesta íþrótta­þjóð í heimi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár