„Ekki ólíkt því að leita uppi svartamarkað eða dópsala“

„Myndi maður dansa ef maður færi í fang­elsi?“Bára Sig­fús­dóttir, dans­ari getur svarað því ját­andi. Í þrjá daga dans­aði hún á ólög­legri dans­há­tíð, sem fram fór í kjall­ara ofan í kjall­ara, þar sem hætta var á harðri refs­ingu ef upp kæm­ist, opin­berri hýð­ingu.

„Ekki ólíkt því að leita uppi svartamarkað eða dópsala“

Á horni Páfugls­strætis og Sankti-Jean torgs við útjaðar gamla bæj­ar­ins í Brussel mæli ég mér mót við Báru Sig­fús­dóttur dans­höf­und á kaffi­hús­inu Aksum. Þessi græn­mál­aði eþíópíski staður er lítið vin í kaffi­snauðri eyði­mörk gamla bæj­ar­ins, þar sem hver ein­asti staður býður upp á að minnsta kosti tíu mis­mun­andi klaust­ur­bjóra og eina gerð af gallsúru frönsku kaffi. Aksum býður upp á rót­sterkt kaffi með bitrum keim sem fær mann til að hugsa um dökka mold og krydd­angan. Ég panta espressó og bíð.

Bára kemur á til­sömdum tíma en biðst samt afsök­unar á að vera sein. Það var smá síma­vesen hjá okkur báðum og við byrjum á að spjalla um belgísku síma­fyr­ir­tækin, hvað það sé erfitt að fá gott net, svo um kaffið og loks nauð­syn þess að eiga góða vatns­ryksugu. Bára er búin að búa í Belgíu í tæp sjö ár, hefur byggt sér upp nafn og sér­stöðu í dans­sen­unni …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár