Katrín útilokar hvorki minnihlutastjórn né þjóðstjórn: „Ekkert útilokað í stöðunni“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hefur skilað for­seta Íslands stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðin. Hún úti­lokar hvorki minni­hluta­stjórn né þjóð­stjórn og segir að nú verði allir flokkar að skoða hvað þeir eru til­búnir til að gera til að nálg­ast aðra flokka betur.

Katrín útilokar hvorki minnihlutastjórn né þjóðstjórn: „Ekkert útilokað í stöðunni“
Katrín Jak­obs­dóttir Segir stöð­una nú snúna, þó hún sé ekki til­búin að tala um stjórn­ar­kreppu. Mynd: Pressphotos

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, ræddi við frétta­menn á Bessa­stöðum, eftir að hafa skilað Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands, stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu nú í morgun. Hún sagð­ist hafa notað gær­dag­inn til þess að fara yfir aðra val­kosti, eftir viku­tíma í stjórn­ar­myndum sem gekk ekki upp, og í gær­kvöldi  hafi hún ákveðið að „kasta inn hand­klæð­inu“. Hún hafi upp­lýst for­seta um þá kosti sem hún sæi í stöð­unni. Hún mælti ekki við því við for­seta með því að ein­hver sér­stakur fengi stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið og sagði for­set­ann verða að gera grein fyrir því hver næstu skref yrðu.   

Katrín sagði stöðu allra flokka nú vera að þrengj­ast. Úrslit kosn­ing­ana hafi falið það í sér að ekki sé hægt að ná eins mál­efna­legri sam­stöðu og oft áður. Nú þurfi hver flokkur  að ræða það innan sinna raða hvort slaka þurfi á kröf­unum.

Spurð að því hvort nú þurfi hugs­an­lega að mynda minni­hluta­stjórn eða þjóð­stjórn sagði Katrín ekk­ert úti­lokað, nú þegar búið væri að reyna að mynda tvær meiri­hluta­stjórnir án árang­urs. Hún vildi ekki kalla ástandið nú stjórn­ar­kreppu en staðan væri snúin.

Vonbrigði að viðræðunum hafi lokið 

Sjálf hefði hún ekki náð þeim árangri sem hún vænti og að hún hefði orðið hissa á því hvernig við­ræður Vinstri grænna við Sam­fylk­ingu, Pírata, Bjarta fram­tíð og Viðreisn fóru. „Ég varð fyrir miklum von­brigðum,“ sagði hún. Hún hafi hins vegar ákveðið að slíta við­ræð­unum strax. 

„Ég varð fyrir miklum von­brigðum“

Áður hefur komið fram að á fundi hennar með Benedikt Jóhann­essyni, for­manni Við­reisnar, hafi hann lýsti því yfir að hann hefði ekki sann­fær­ingu fyrir þess­ari leið. Í sam­tali við frétta­menn nú sagði Katrín að hún liti svo á að allir yrðu að hafa sann­fær­ing­una til að halda þess­ari veg­ferð áfram. Án þess væri varla hægt að gera nauð­syn­legar mála­miðl­anir til að þessir fimm flokkar geti náð saman. Heil­brigð­is­málin hafi verið stóra málið í kosn­inga­bar­átt­unni og flokk­arnir þyrftu að finna leiðir sem þeir væru sáttir við til að fjár­magna þá upp­bygg­ingu.

Ræddi við Bjarna

Þá sagð­ist hún hafa rætt við Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Ég átti sam­tal við Bjarna í gær og hef átt mörg sam­töl við hann,“ en bætti því við að að væri mál­efna­lega langt á milli þess­ara flokka og mál­efnin réðu för. Það væri ástæða fyrir því hvar flokk­arnir stað­settu sig á þessum hefð­bundna ás, til hægri eða vinstri. Staðan væri hins vegar farin að þrengj­ast. Nú sé tíma­bært að flokk­arnir fari aftur yfir sína afstöðu því á end­anum verði að mynda rík­is­stjórn. „Mér finnst kannski of snemmt að segja til um það,“ sagði hún um mögu­leik­ann á að því að Vinstri grænir og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gætu myndað rík­is­stjórn.

Að lokum sagði hún að þing þyrfti að koma saman til að ljúka fjár­lögum, og það væri vel hægt án þess að búið væri að mynda rík­is­stjórn. 

Enginn fær umboðið 

Guðni Th. Jóhann­es­son steig síðan fram og sagð­ist ekki ætla að láta neinn fá stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið að svo stöddu. Eftir fund­inn með Katrínu hefði hann rætt við for­menn allra flokka og hvatt þá til þess að ræða sín á milli í leit að lausnum, um leið og hann hefði minnt á þá miklu ábyrgð, sem hvílir á þing­inu, að sjá til þess að ný rík­is­stjórn verði mynduð þegar fyrri stjórn hefur misst þing­meiri­hluta og beðist lausnar.

Hann sagð­ist hafa ástæðu til að ætla að það skili árangri, án þess að skýra það frekar. Hann vænti þess að um eða eftir helgi hefðu lín­urnar skýrst og þá væri hægt að sjá fyrir næstu skref í þessum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. 

Guðni sér mögu­leik­ann á nýrri rík­is­stjórn.

„Í ljósi þess hvernig við­ræður um stjórn­ar­myndun hafa þró­ast frá kosn­ingum og þeirra sjón­ar­miða sem fram hafa komið í sam­tölum mínum við for­vígs­menn flokk­anna hef ég ákveðið að veita ekki einum til­teknum for­manni eða full­trúa flokks umboð til stjórn­ar­mynd­unar að sinni. Fyrir slíku skrefi eru bæði hefð og gildar ástæður eins og málum er komið. Skyn­sam­leg­ast er að for­ystu­fólk flokk­anna á þingi kanni óform­lega næstu daga hvers konar sam­starf sé mögu­legt enda eru slíkar við­ræður þegar hafnar. Í því sam­bandi árétta ég mik­il­vægi þess að stjórn­mála­menn­irnir rísi undir þeirri ábyrgð sem þeim er lögð á herðar, að sjá til þess að í land­inu sé rík­is­stjórn sem meiri­hluti á Alþingi geti sætt sig við. Ég nefni jafn­framt þá brýnu nauð­syn að kalla þing senn saman. Vita­skuld væri æski­leg­ast að sam­komu­lag um nýja rík­is­stjórn lægi fyrir við þing­setn­ingu.“

Aðspurður sagði hann að þing þyrfti að koma saman á næstu vikum. „Ég er ekki að segja að það komi saman í næstu viku eða þar næstu viku. Segjum að það komi saman fyrir jól.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár