Píratar fengu enga styrki frá einkafyrirtækjum á síðasta ári

Rekstur Pírata gengur vel ef litið er á ársreikning stjórn­mála­flokksins. Hann skuldar ekki nema rúmar tvö hundruð þúsund krónur og á tæpar 22 milljónir króna í eigið fé.

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jóns­dóttir Þing­maður og einn umboðs­maður Pírata. Mynd: Kristinn Magnússon

Píratar fengu enga styrki frá einka­fyrirtækjum á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársreikningi Pírata. Þá fengu Píratar aðeins framlag frá Reykja­víkurborg þar sem þeir eiga fulltrúa í borgar­stjórn. Framlagið var upp á rúma eina og hálfa milljón.

Framlög einstaklinga undir tvö hundruð þúsund krónum námu samtals 1,3 milljónum króna á síðasta ári. Heildar­framlög til flokksins, þar með talin ríkis­framlög, voru tæpar tuttugu og tvær milljónir króna árið 2015. Píratar mælast næst stærsti flokkur landsins í skoðana­könnunum með í kringum 20 prósenta fylgi en til saman­burðar þá fékk stærsti flokkur landsins, Sjálfstæðis­flokkurinn, samtals rúmar 160 milljónir króna í heildar­framlög á síðasta ári, þar af 20 milljónir króna frá um 80 einka­fyrirtækjum. Munurinn á framlögum til Sjálfstæðis­flokks og Pírata var því 138 milljónir króna á síðasta ári. 

Hér má sjá listann yfir styrk­veitendur Sjálfstæðis­flokksins.

Rekstur flokksins gengur vel og hafa Píratar skilað tæpum 22 milljónum króna í hagnað síðastliðin tvö ár sem er uppi­staðan í eigin fé flokksins. Samkvæmt ársreikningi á flokkurinn enga varanlega rekstrar­fjármuni eins og til dæmis fasteignir eða bifreiðar.

Hér er hægt að sjá útdrátt Ríkis­endur­skoðunar á ársreikningi Pírata.

Framlög frá sveitarfélögum

  • Reykja­víkurborg     1.517.000

Samtals:                     1.517.000

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár