Mynd: Shutterstock

Einstakar sundlaugar

Íslend­ingar hafa löngum verið þekktir fyrir sér­staka bað­menn­ingu, og það eru ekki bara Bláa lónið og nátt­úru­laug­arnar sem heilla, heldur má einnig finna fjöl­margar mann­gerðar sund­laugar víðs­vegar um landið sem koma bað­gestum í ein­staka snert­ingu við feg­urð og kyrrð íslenskrar nátt­úru. Stundin tók saman nokkrar slíkar laugar. 

Pollurinn
Poll­ur­inn

Pollurinn

Í hlíð­inni fyrir ofan Tálkna­fjörð er að finna ein­staka potta sem í dag­legu tali eru kall­aðir Poll­ur­inn. Stór­brotið útsýni yfir fjöllin og fjörð­inn hefur laðað að fjöl­marga ferða­menn, og þá skemmir heldur ekki fyrir að frítt er í laug­ina.  

Poll­ur­inn var byggður árið 1985 og er þrí­skiptur, tveir set­pottar og einn aðeins dýpri. Við laug­arnar er bún­ings­hús sem öllum er frjálst að nota og er þeim haldið við af hreppnum. Vatnið í pott­ana kemur úr bor­holu í landi Litla-Laug­ar­dals. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár