„Á dögunum var upplýst um að Ísland hefði orðið fyrir hryðjuverkaárás án þess að ráðamenn eða Ríkislögreglustjórinn væru að kippa sér mikið upp við það,“ segir Kristinn Hrafnsson, blaðamaður og talsmaður WikiLeaks, í nýrri stöðuuppfærslu á Facebook. „Árásin var raunar gerð af GCHQ, njósnastöð bresku leyniþjónustunnar og beindist árásin að friðhelgi einkalífs fjölda íslendinga. Breska stofnunin deildi sínum upplýsingum með NSA, þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna. Báðar þessar stofnanir hafa orðið uppvísar um stórfelldar og grófar árásir á borgaraleg réttindi, eigin ríkisborgara sem og annara.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.









































Athugasemdir