Bundin og fáklædd kona sögð jólaskraut hjá ölstofu í Kópavogi

Facebook-aug­lýs­ing Ridd­ar­ans Ölstofu í Kópavogi vekur hörð við­brögð og er kráin sökuð um að ala á kyn­bundnu ofbeldi. Kráin birtir mynd af fáklæddri, keflaðri konu og líkir henni við jóla­skraut. „Þetta er ógeðs­legt ég hef aldrei verið jafn pirruð út í aug­lýs­ingu,“ skrifar gagn­rýn­andi.

Bundin og fáklædd kona sögð jólaskraut hjá ölstofu í Kópavogi

Facebook-deil­ing Ridd­ar­ans Ölstofu í Kópavogi hefur vakið hörð við­brögð en kráin deildi í fyrra­dag mynd af fáklæddri konu í jóla­sveina­bún­ing, bund­inni með reipi og með lím­band yfir munn­inum.

„Hey ... Við erum búin að opna á þessum fal­lega og frísk­andi mánu­degi ... Gleði­stundin er byrjuð ... og jólin að klár­ast,“ skrifar kráin við færsl­una.

Hörð gagn­rýni birt­ist á mynd­birt­ing­una í athuga­semdum við færsl­una. Alba Rós spyr í athuga­semd hver sé til­gang­ur­inn með því að birta slíka mynd í aug­lýs­ing­ar­skyni. „Nú það er ein­fald­lega svo..að jólin eru að klár­ast, þá bindum við þetta allt saman. Hvort sem um flókið jóla­skraut er að ræða eða bara þetta ein­falda,“ svarar kráin.

Ásta Marteins spyr á móti hvort mann­eskjan sé jóla­skrautið í þess­ari lýs­ingu. „Ja, hún kom við og skemmti gestum þessi elska. En aðventan var sér­stak­lega skemmti­leg hjá okkur á Riddara við fengum svo marga skemmti­lega við­skipta­vini og skemmti­krafta. En jólin voru tekin niður í dag og nú er hvers­dags­leik­inn tek­inn við með fót­bolta­veislu og fullt af ísköldum bjór. Tölum nú ekki um allt fal­lega fólkið sem dettur inn,“ svarar Ridd­ar­inn.

Í kjöl­farið á þessu svari gera margir athuga­semd við færsl­una. „Pointið var ábyggi­lega til að reyna að fá sem fæstar konur til sín, þeim á ridd­ar­anum finnst kyn­bundið ofbeldi nefni­lega rosa­lega fyndið,“ skrifar til að mynda Una Geirdís Flosa­dóttir. Því hafnar Ridd­ar­inn og segir kyn­bundið ofbeldi ekki eiga sér stað á Ridd­ar­anum heldur „bara fót­bolti og fal­legt fólk. Þessi jóla­sveina­stelpa var bara að sýna okkur töfra­bragð jól­ana“.

Fjöl­margir lýsa van­þóknun sinni á færslu Ridd­ar­ans. „Að binda konu og líma fyrir munn­inn á henni er ekki bara takt­laust, sið­laust og nið­ur­lægj­andi heldur kall­ast það ofbeldi. Þið ættuð að skamm­ast ykkar!“ skrifar til að mynda Eyrún Vikt­ors­dóttir. Ísak Jónsson lýsir því yfir að hann muni ekki stunda við­skipti við krána aftur. „Þetta er ógeðs­legt ég hef aldrei verið jafn pirruð út í aug­lýs­ingu,“ skrifar Gréta Þórunn Rún­ars­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár