Brenndu 13 ára dreng til dauða

„Margir krakkar hérna á svæð­inu hrökkva upp á nótt­unni við martraðir um dróna”

Brenndu 13 ára dreng til dauða
Fylgst með árás Barack Obama Banda­ríkja­for­seti fylgist með árás úr fjar­lægð. Mynd: Public Domain

Þann 26. jan­úar greindi New York Times frá því að þrír menn, sem grun­aðir væru um aðild að Al-Kaída-sam­tök­unum, hefðu látið lífið í dróna­árás CIA, banda­rísku leyni­þjón­ust­unnar. Þetta var haft eftir ónafn­greindum emb­ætt­is­mönnum í Washington og eng­inn fyr­ir­vari settur við frá­sögn þeirra. Einn hinna látnu hét Mohammed Toiman al-Jahmi og var jem­enskur ung­lingur, en árið 2011 voru faðir hans og bróðir drepnir í sams konar árás.

Jahmi var aðeins 13 ára gam­all dag­inn sem hann var drep­inn. Nokkrum mán­uðum áður hafði ung­ling­ur­inn greint Guardian frá því að hann „lifði í stöð­ugum ótta við dauðama­sk­ín­urnar“ sem þá höfðu orðið föður hans og bróður að bana meðan þeir voru að smala saman kamel­dýrum fjöl­skyld­unnar. Sömu örlög biðu Jahmi sem tek­inn var af lífi í lok jan­úar ásamt mági sínum og vini. „Hann var ekki al-kaída-liði, hann var bara krakki,“ er haft eftir Maqded, bróður Jahmi. „Þeir voru sak­laust fólk. Við erum veik­burða og fátækt fólk. Við höfum ekk­ert með þetta að gera. Við lifum við rang­læti.“

Talið er að á fjórða hund­rað barna hafi lát­ist í sams konar árásum Banda­ríkja­hers og CIA und­an­farin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár