Panamaskjölin: Eigendur elstu heildverslunar Íslands stunduðu viðskipti gegnum Tortólu

Erf­ingjar heild­söl­unnar Ó. Johnson og Kaaber, seldu hluta­bréf til Tortóla­fé­lags fyrir nærri 330 millj­ónir króna. Fjögur systk­ini og móðir þeirra stýrðu félag­inu sem hét Eliano Mana­gement Corp sem hóf lán­tökur upp á mörg hund­ruð millj­ónir króna í bönkum í Lúx­em­borg. Systk­inin, meðal ann­ars fyrr­ver­andi frétta­mað­ur­inn Helga Guðrún Johnson, neita að tala um Tortóla­fé­lagið. Skatta­sér­fræð­ingur segir veru­legt skatta­hag­ræði kunna að hafa verið af félag­inu.

Svara ekki spurningum
Svara ekki spurn­ingum Þau Helga Guðrún Johnson og Ólafur Johnson, sem er fram­kvæmda­stjóri Ó. Johnson og Kaaber í dag, hafa ekki viljað veita upp­lýs­ingar um Eliano Mana­gement Corp. Skömmu eftir and­lát föður þeirra árið 2001 seldu þau hluta­bréf fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­is­ins inn í Tortóla­fé­lagið af ástæðum sem ekki liggja fyrir. Helga Guðrún svarar ekki sím­tölum og Ólafur segir í tölvu­pósti að hann geti ekki veitt neinar upp­lýs­ingar um félagið. Mynd: Ásdís Ásgeirsdóttir

Eigendur elstu heild­versl­unar Íslands, Ó Johnson & Kaaber hf., stofn­uðu félag í skatta­skjól­inu Tortóla árið 2001 og not­uðu félagið meðal ann­ars til að kaupa hluta­bréf í íslenskum fyr­ir­tækjum af  eign­ar­halds­fé­lagi sínu á Íslandi fyrir á fjórða hund­rað millj­ónir króna. Þá fékk Tortóla­fé­lag fjöl­skyld­unnar lán upp á nokkur hund­ruð millj­ónir króna í Bún­að­ar­bank­anum í Lúx­em­borg og Lands­bank­anum í Lúx­em­borg. Um var að ræða erf­ingja heild­versl­un­ar­innar, börn Ólafs Ó. Johnson, sem var for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins um ára­tuga­skeið, og móður þeirra, Guðrúnu Gunn­laugs­dóttur Johnson. 

Félagið hét Eliano Mana­gement Corp. og fengu þau Guðrún Gunn­laugs­dóttir Johnson og börn hennar, Frið­þjófur Johnson, Helga Guðrún Johnson, Ólafur Ó. Johnson og Gunn­laugur Johnson öll pró­kúru­um­boð yfir félag­inu í sept­em­ber árið 2010. Faðir þeirra, Ólafur H. Johnson, hafði lát­ist í júní sama ár. 

Þessar upp­lýs­ingar koma fram í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu – gögnum frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca í Panama – sem lekið var til þýska blaðs­ins Süddeutsche Zeitung. Þýska blaðið miðl­aði gögn­unum svo til alþjóð­legu blaða­manna­sam­tak­anna ICIJ sem aftur hófu sam­starf við fjöl­marga fjöl­miðla víða um heim til að vinna úr gögn­unum. Íslenskur sam­starfs­að­ili Süddeutsche Zeitung er íslenski fjöl­mið­il­inn Reykja­vík Media ehf. og vinnur Stundin grein­ina um Eliano Mana­gement Corp í sam­starfi við þann miðil. Í gagna­grunni, sem öllum er opinn um Panama­skjölin, kemur nafn Eliano Mana­gement Corp fyrir en þar eru engar hlut­hafa­upp­lýs­ingar eða aðrar efn­is­legar upp­lýs­ingar um starf­semi þessa fyr­ir­tækis. 

Notkun á félögum í skatta­skjólum er ekki ólög­leg svo fram­ar­lega sem eig­endur slíkra fyr­ir­tækja greiða af þeim lög­bundna skatta og upp­lýsa skatta­yf­ir­völd í heima­löndum eig­enda þeirra um til­vist þess­ara félaga ef ástæða er til vegna skatt­greiðslna. Engar upp­lýs­ingar eða vís­bend­ingar eru í Panama­skjöl­unum um hvernig skatt­greiðslum Eliano Mana­gement Corp var háttað en hið sama gildir um lang­flest slík félög sem er að finna í skjöl­unum.

Einn þekktasti kaffiframleiðandi landsins
Einn þekkt­asti kaffi­fram­leið­andi lands­ins Fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Ó Johnson og Kaaber hefur verið einna þekkt­ast fyrir fram­leiðslu sína á kaffi og rak meðal ann­ars kaffi­brennslu í Reykja­vík. Fyr­ir­tækið fram­leiddi meðal ann­ars Ríó-kaffi, Kaaber-kaffi, Rúbín-kaffi og Braga­kaffi, Heild­versl­unin er ennþá blóm­legt fyr­ir­tæki og er með um 50 starfs­menn og tæp­lega þriggja millj­arða króna tekjur.

110 ára heildverslun með nærri þriggja milljarða tekjur

Ólafur Johnson var sonur Ólafs Þ. Johnson, sem stofn­aði Ó. Johnson og Kaaber árið 1906 ásamt Ludvig Kaaber. Hann stýrði félag­inu sem for­stjóri á árunum 1955 til 1991. Ó. Johnsson og Kaaber var fyrst og fremst þekkt á Íslandi fyrir fram­leiðslu á kaffi á árum áður og seldi meðal ann­ars Rúbín-kaffi auk Braga­kaffis og Kaaber-kaffis. Fyr­ir­tækið var einnig í alls kyns inn­flutn­ingi og eins útflutn­ingi líka fyrstu ára­tug­ina eftir að fyr­ir­tækið tók til starfa.

Fyr­ir­tækið er enn þá starf­andi sem heild­sala og sinnir inn­flutn­ingi á mörgum þekktum vöru­merkjum og er með um 50 starfs­menn í dag.  Ekki er ofmælt þegar sagt er að Ó. Johnson og Kaaber hafi verið ein þekktasta heild­verslun lands­ins á síð­ustu öld og er fyr­ir­tækið enn þá nokkuð umsvifa­mikið. Heild­versl­unin hefur verið vel rekin á liðnum árum og hefur verið á lista Láns­trausts yfir „fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki“ vegna góðs rekstrar.

Fyr­ir­tækið var með nærri þriggja millj­arða króna tekjur árið 2014 og hagn­að­ist þá um rúm­lega 97 millj­ónir króna. Arð­greiðsla til eina hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins, Esju­bergs ehf., nam 75 millj­ónum króna og 95 millj­ónum króna árið á undan. Esjuberg er eitt af þeim fyr­ir­tækjum sem Tortóla­fé­lagið Eliano keypti hlut í af Johnson ehf. árið 2002. Ljóst er því að Johnson-fjöl­skyldan fær enn ágætis arð af starf­semi heild­versl­un­ar­innar.

Tekið skal fram að engar heim­ildir eru um það í Panama­skjöl­unum að Johnson-fjöl­skyldan hafi not­ast við félög í skatta­skjólum fyrr en eftir að Ólafur Johnson féll frá árið 2001.

„Ég veit það ekki; ég átti ekki félagið“

„Ég hef bara ekkert um þetta að segja“

Frið­þjófur Johnson var einn pró­kúru­haf­anna sem skrif­aði undir lána­samn­inga fyrir hönd Eliano árið 2007. Þá fékk félagið 2,1 milljón doll­ara lán frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg og bætt­ist sú upp­hæð við tæp­lega 2,2 millj­óna doll­ara lán­veit­ingu sem fyr­ir­tækið var þá búið að fá. Frið­þjófur neitar hins vegar að tjá sig um starf­semi félags­ins  sem hann hafi ekki átt og að hann hafi ein­ungis verið að vinna í umboði eig­anda þess eða eig­enda. Hann neitar að gefa upp hver þessi eig­andi var.

Frið­þjófur: Ég var ekki eig­andi félags­ins og hef ekk­ert með það að gera.

Blaða­maður: En þú varst með pró­kúru fyrir félagið?

Frið­þjófur: Þetta var bara hlutur sem þurfti að gera á sínum tíma, undir ákveðnum ástæðum, og er löngu dautt og búið.

Blaða­maður: Það eru þarna samn­ingar …

Frið­þjófur: Ég hef bara ekk­ert um þetta að segja því ég á ekki félagið og hef ekk­ert með það að gera.

Blaða­maður: Hver átti félagið þá?

Frið­þjófur: Ég held að þú verðir bara að finna út úr því. 

Blaða­maður: Það er yfir­leitt þannig að þeir sem eru pró­kúru­hafar félags eru eig­endur þess?

Frið­jófur: Ég er ekki eig­andi félags­ins.

Blaða­maður: En þú und­ir­ritar lána­samn­inga og annað slíkt fyrir hönd þess?

Frið­þjófur: Ég er ekki eig­andi félags­ins og var bara að vinna í umboði fólks sem átti þetta félag og ég hef ekki meira um málið að segja.

Blaða­maður: En þið eruð öll með pró­kúr­u­m­boð þarna, systk­inin?

Frið­þjófur: Er eitt­hvað fleira sem ég get gert fyrir þig?

Blaða­maður: Viltu segja mér hvað þetta fyr­ir­tæki gerði?

Frið­þjófur: Ég veit það ekki; ég átti ekki félagið.

Blaða­maður: En þú skuld­bindur það samt; þú skrifar undir við­skipti fyrir hönd félags­ins.

Frið­þjófur: Reyndu bara að kom­ast að því hvað fyr­ir­tækið gerði.

Blaða­maður: Það eru meðal ann­ars þarna kaup félags­ins á eignum Johnson ehf. á Íslandi?

Frið­þjófur: Skoðaðu hver átti félagið.

Blaða­maður: Það kaupir eignir á meira en 300 millj­ónir.

Frið­þjófur: Skoðaðu hver átti félagið.

Blaða­maður: Þú veist greini­lega tals­vert um félagið.

Frið­þjófur: Ég veit ekk­ert um félagið; ég veit bara hver átti félagið. 

Blaða­maður: Og þú skrifar undir lána­samn­inga fyrir þess hönd.

Frið­þjófur: Í umboði eig­enda; það er skýr­ing á því. Ef þú finnur út hverjir eig­end­urnir eru og hvaða skýr­ingar eru á þessu. En ég hef enga heim­ild til að gefa upp hver á félagið.

Systir Frið­þjófs, Helga Guðrún Johnson, vill heldur ekki ræða um félagið Eliano Mana­gement Corp þegar Stundin hringir í hana. Helga Guðrún sagð­ist vera í önnum þegar Stundin hringdi í hana og sagð­ist ætla að hringja til baka en hún gerði það svo ekki. Hún svar­aði ekki frek­ari sím­tölum frá blaða­manni þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Tekið skal fram að Helga Guðrún starf­aði sjálf lengi sem blaða- og frétta­maður á Stöð 2. Í sept­em­ber árið 2001, í sama mán­uði og hún fékk pró­kúru­um­boð yfir Tortóla­fé­lagi fjöl­skyld­unnar, sagði DV frá því að Helga Guðrún væri hætt störfum á Stöð 2 og að hún ætl­aði að setj­ast á skóla­bekk og ein­beita sér að ræktun svína ásamt eig­in­manni sínum. Hún hætti því að starfa sem blaða­maður um það leyti sem hún fékk yfir­ráð yfir umræddu Tortóla­fé­lagi.

170 milljóna króna hlutur í Eimskipum
170 millj­óna króna hlutur í Eim­skipum Meðal eigna sem Johnson ehf. seldi til Tortóla­fé­lags­ins var tæp­lega 170 millj­óna króna hlutur í skipa­fé­lag­inu Eim­skipum. Hér sést Goðafoss, eitt af flutn­inga­skiptum félags­ins.

Keypti hlutabréf fjölskyldufyrirtækisins

Helsti til­gangur Tortóla­fé­lags­ins virð­ist hafa verið sá að kaupa hluta­bréf sem voru í eigu fyr­ir­tæk­is­ins Johnson ehf. sem stofnað var í árs­byrjun árið 2002. Inni í þessu félagi voru hluta­bréf að verð­mæti 329 millj­ónir króna í des­em­ber árið 2002.

Um var að ræða bréf í Eim­skipa­fé­lagi Íslands upp á tæp­lega 173 millj­ónir, tæp­lega 81 milljón króna í Flug­leiðum, 44 millj­ónir í Esju­bergi hf. – fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki í eigu Johnson-fjöl­skyld­unnar sem áður hefur verið minnst á – auk bréfa í Sjóvá, Hamp­iðj­unni og Trygg­inga­mið­stöð­inni. Öll þessi bréf voru seld inn í Tortóla­fé­lagið í lok árs 2002.

Greiðslan á kaup­verð­inu fór fram með reiðufé sam­kvæmt kaup­samn­ingi og var lögð inn á reikn­ing Johnson ehf. í Bún­að­ar­bank­anum. Með þessu móti var búið að koma þessum hluta­bréfum fjöl­skyld­unnar á Íslandi í eigu félags í skatta­skjóli.

Samn­ing­ur­inn um kaupin á hluta­bréf­unum var und­ir­rit­aður þann 6. des­em­ber árið 2002. Undir samn­ing­inn skrif­uðu Guðrún Gunn­laugs­dóttir Johnson og öll börnin hennar fjögur – Ólafur Örn, Frið­þjófur, Helga Guðrún og Gunn­laugur.

Í árs­reikn­ingi Johnson ehf. fyrir árið 2002 kemur fram rúm­lega 8 millj­óna króna tap og er ekk­ert í árs­reikn­ingum sem gefur til­efni til að ætla að félagið hafi selt hluta­bréf fyrir á fjórða hund­rað millj­ónir króna á því ári. 

Hlutur í móðurfélaginu Ó. Johnson og Kaaber
Hlutur í móð­ur­fé­lag­inu Ó. Johnson og Kaaber Johnson ehf. seldi meðal ann­ars hlut í Esju­bergi, móð­ur­fé­lagi Ó. Johnson og Kaaber. til Tortóla­fé­lags­ins Eliano Mana­gement Corp. Hér sést samn­ing­ur­inn um söl­una á hluta­bréfum fjöl­skyld­unnar til Tortóla­fé­lags­ins en hann er meðal þeirra gagna sem er að finna í Panama­skjöl­unum.

Guðrún lánaði félaginu 335 milljónir

Þótt Eliano Mana­gement Corp hafi síðar fengið lán frá bæði Lands­bank­anum í Lúx­em­borg og Bún­að­ar­bank­anum þá var félagið ekki búið að fá neitt lánað frá þessum fyr­ir­tækjum á þessum tíma.

Eðlilega vakna því spurn­ingar um hvernig kaup­verðið var greitt. Þetta kemur ekki fram í Panama­skjöl­unum. 

Í þing­lýstum gögnum frá emb­ætti rík­is­skatt­stjóra kemur fram að sama dag og Tortóla­fé­lagið keypti hluta­bréfin af Johnson ehf. þann 6. des­em­ber árið 2002 hafi Guðrún Johnson breytt tveimur skulda­bréfum sem hún átti á hendur félag­inu upp á rúm­lega 335 millj­ónir króna í hlutafé í Johnson ehf. upp á fimm millj­ónir króna að nafn­verði.

Guðrún Johnson sjálf virð­ist því, með ein­hverjum hætti, hafa fjár­magnað þau við­skipti sem Eliano stund­aði með hluta­bréf Johnson ehf. í des­em­ber árið 2001.

Um þetta segir í þing­lýstri sér­fræði­skýrslu frá Deloitte & Touche hf. sem aðgengi­leg er í gegnum vef­svæði Láns­trausts: „Í tengslum við hluta­fjár­hækkun í einka­hluta­fé­lag­inu Johnson ehf. […] er ákveðin var á hlut­hafa­fundi sem hald­inn var hinn 6. des­em­ber 2002, var fram­lag fyrir allri hluta­fjár­aukn­ing­unni greidd með öðru heldur en reiðufé. Lagði Guðrún G. Johnson […] fram sem end­ur­gjald fyrir hlutafé kröfur sínar er hún á á hendur félag­inu sam­tals að fjár­hæð kr. 335.444.902 sam­kvæm tveimur skulda­bréfum með breytirétti.“

Miðað við þessar upp­lýs­ingar er því alls ekki víst að nokkrir fjár­munir hafi skipt um hendur í þessum við­skiptum þar sem við­skiptin voru líka á milli tengdra aðila. Eftir stóð hins vegar að Tortóla­fé­lag var orðið eig­andi verð­mætra hluta­bréfa á Íslandi. 

Ekki er hins vegar minnst á Tortóla­fé­lagið í neinum opin­berum gögnum á Íslandi sem blaða­maður hefur séð. Þannig voru engar vís­bend­ingar um að félagið væri til og væri í eigu ein­stak­linga í Johnson-fjöl­skyld­unni fyrr en Pana­ma­gögnin komu fram.

Eliano byrjar að fá lán  

Eftir að samn­ing­ur­inn um kaupin á hluta­bréf­unum af Johnson ehf. var und­ir­rit­aður fékk Eliano Mana­gement Corp lán frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg upp á tæp­lega tvær millj­ónir doll­ara þann 19. des­em­ber 2002. Lands­bank­inn veitti svo frek­ari lán til félags­ins árið 2004, 2005 og 2007 þannig að heild­ar­lán­veit­ingin fór upp í 4,2 millj­ónir evra, eða rúm­lega 370 millj­ónir króna. 

Undir lán­veit­ing­una í febr­úar árið 2007 skrif­uðu öll systk­inin fjögur – Ólafur, Frið­þjófur, Helga Guðrún og Gunn­laugur – fyrir hönd Eliano.  Í Panama­skjöl­unum er ekki að finna neinar heim­ildir fyrir því hvað varð um þessi lán eftir að þau voru veitt til Eliano. Ekki liggur því fyrir út frá gögn­unum hvort þau voru greidd til baka eða ekki. 

Fyrir liggur hins vegar að fyr­ir­tækið Johnson ehf. fékk fjár­muni frá Eliano Mana­gement Corp fyrir við­kom­andi hluta­bréf. Hluta­bréfin urðu hins vegar áfram í höndum félags sem var stýrt af sömu aðilum og stýrðu Johnson ehf. þar sem sömu ein­stak­lingar og skrif­uðu undir sölu eign­anna fyrir hönd Johnson ehf. voru líka pró­kúru­hafar í Eliano Mana­gement Corp. Hlut­hafar Johnson ehf. voru við stofnun félags­ins þau Guðrún Gunn­laugs­dóttir Johnson  með 80 pró­senta hlut og börnin hennar skiptu með sér 20 pró­senta hlut. 

Seldi svo hlutabréf í Morgunblaðinu

Félagið Johnson ehf. var hins vegar áfram virkt á íslenska hluta­bréfa­mark­að­inum þótt búið væri að selja stóran hluta af eignum þess til umrædds Tortóla­fé­lags. Johnson ehf. átti um tíu pró­senta hlut í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, sem félagið seldi til fjár­fest­is­ins Kristins Björns­sonar árið 2005 en hann var þá einn ráð­andi hlut­hafa fjár­fest­ing­ar­bank­ans Straums. Straumur eign­að­ist svo hlut­inn í Árvakri. Við­skiptin fóru þannig fram að félagið Johnson ehf. var selt í heilu lagi með hluta­bréf­unum í Árvakri og breytti félagið svo um nafn í kjöl­farið og varð að MGM eign­ar­halds­fé­lagi. Í árs­reikn­ingi þess félags fyrir árið 2005 eru hluta­bréfin í Árvakri sem félagið á sögð vera tæp­lega 626 millj­óna króna virði en kaup­verð þeirra er sagt hafa verið tæp­lega 284 millj­ónir króna. 

Hluta­bréfin í Árvakri höfðu verið lengi í eigu Johnson-fjöl­skyld­unnar og sat Frið­þjófur Johnson meðal ann­ars í stjórn útgáfu­fé­lags­ins á grund­velli þess­arar hluta­bréfa­eignar. Sala þeirra á bréf­unum vakti tals­verða athygli í fjöl­miðlum á Íslandi og var fjallað um hana í dag­blöðum.

Johnson-fjöl­skyldan átti því í umtals­verðum frek­ari hluta­bréfa­við­skiptum í gegnum Johnson ehf. eftir að félag þeirra seldi hluta­bréf sín til Eliano Mana­gement Corp.

„Ég hef því ekk­ert við svar Frið­þjófs að bæta.“

Tortólafélagið keypti í móðurfélagi Ó. Johnson & Kaaber

Ólafur Örn Johnson, einn af systkin­unum sem var með pró­kúru­um­boð fyrir Eliano Mana­gement Corp og núver­andi fram­kvæmda­stjóri Ó. Johnson & Kaaber, hefur ekki svarað spurn­ingum Stund­ar­innar sem honum hafa verið sendar í tölvu­pósti. Í tölvu­bréfi til Stund­ar­innar segir Ólafur Örn að hann hafi ekk­ert við svar Frið­þjófs að bæta: „Ég biðst for­láts að hafa ekki haft tíma til að svara þér. Mér skilst að þú hafir rætt við bróður minn Friðþjóf  ég hef ekki frek­ari upp­lýs­ingar til að gefa þér. Ég hef því ekk­ert við svar Frið­þjófs að bæta.“ Ólafur svar­aði svo ekki tölvu­pósti þar sem hann var beð­inn um við­tal vegna máls­ins.

Systk­inin virð­ast því ekki vilja ræða um Tortóla­fé­lagið Eliano Mana­gement Corp og þar af leið­andi er ekki hægt að full­yrða neitt um til­gang félags­ins og skatt­skil þess. Móðir þeirra, Guðrún Gunn­laugs­dóttir Johnson, féll frá í árs­byrjun árið 2013.

Eitt af fyr­ir­tækj­unum sem Tortóla­fé­lagið Eliano Manag­ment Corp var látið kaupa hluta­bréf í var félagið Esjuberg, sem er með kenni­tölu frá árinu 1969, sem er móð­ur­fé­lag Ó. Johnson og Kaaber ehf. í dag eins og áður segir. Í kaup­samn­ingnum segir að Tortóla­fé­lagið hafi keypt hluti í Esju­bergi fyrir rúm­lega 44 millj­ónir króna. Í árs­reikn­ingum Esju­bergs fyrir árin 2003 og 2004 er hins vegar ekk­ert minnst á hluta­bréfa­eign Eliano Mana­gement Corp í félag­inu og kemur í raun ekk­ert fram um hverjir það eru sem áttu Esjuberg á þessum tíma. Hvenær Eliano Mana­gement Corp hætti að eiga hluta­bréf í Esju­bergi liggur því ekki fyrir.

Það sem liggur hins vegar fyrir er að Eliano Mana­gement Corp var afskráð á Tortóla í sept­em­ber árið 2012, sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr Pana­ma­gögn­unum og finn­ast ekki nýrri gögn um félagið en það. Hvað fyr­ir­tækið gerði annað en hér segir á tíma­bil­inu frá stofnun þess eftir síð­ustu alda­mót og fram að afskrán­ingu þess liggur ekki fyrir þar sem pró­kúru­hafar félags­ins vilja ekki ræða við Stundina.

Möguleiki á margs konar skattahagræði

Sér­fræð­ingur í skatta­málum segir við Stundina að margs konar skatta­legt hag­ræði kunni að hafa verið af þeim við­skiptum sem stunduð voru í gegnum félagið á Tortóla. Sér­fræð­ing­ur­inn, sem vill ekki láta nafns síns getið, segir hins vegar að eðli­lega geti hann ekki full­yrt neitt um málið þar sem allar upp­lýs­ingar liggja ekki fyrir.

Hann bendir hins vegar á nokkra mögu­leika: „Það er mögu­leiki á margs konar skatta­hag­ræði þarna. Sölu­hagn­að­ur­inn af hluta­bréf­unum hefði verið skatt­skyldur á Íslandi nema ef félagið sem seldi bréfin hefði fjár­fest í öðrum hluta­bréfum. Þá hefði verið hægt að fresta skatt­lagn­ing­unni. Önnur spurn­ing snýr að því hversu hátt verð var greitt fyrir hluta­bréfin. Ef hluta­bréfin hafa verið seld á lágu verði þannig að sölu­hagn­að­ur­inn af hluta­bréf­unum hafi verið lít­ill eða eng­inn þá mynd­ast engin skatt­skylda fyrir félagið. Þetta er svokölluð fölsk milli­verð­lagn­ing: Að selja hluta­bréfin á lágu verði til Tortóla­fé­lags­ins þannig að sölu­hagn­að­ur­inn verði lít­ill sem eng­inn. Þetta snýst þá um að koma eign­unum inn í Tortóla­fé­lagið og greiða af því eins lít­inn skatt og mögu­legt er. Ef menn hafa séð fram á að hluta­bréfin hefðu hækkað í verði þá gátu þeir látið hagn­að­inn mynd­ast í Tortóla­fé­lag­inu og þá hefðu þeir losað sig undan fram­tíð­ar­skatt­lagn­ingu. Þannig að það eru fjöl­mörg skatta­leg mótív sem geta legið þarna á bak við,“ segir skatta­sér­fræð­ing­ur­inn. 

Eins og áður segir liggur svo ekki fyrir hvað varð á end­anum um hluta­bréfin sem seld voru inn í Eliano Mana­gement Corp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár