Bókabúðir fela áróðursbók gegn múslimum – höfundur æfur

Bókin „Þjóða­plágan íslam“ var fyrst um sinn geymd ofan í skúffu í Bókabúð Máls og menn­ingar. Þýðandi bók­ar­innar var rek­inn af af hér­aðsmiðl­inum Skessu­horni í kjöl­far kvört­unar en skömmu síðar réði Pressan hann sem rit­stjóra. „Hvar er prent­frelsið í land­inu?“ spyr hann.

Bókabúðir fela áróðursbók gegn múslimum – höfundur æfur

Magnús Þór Haf­steins­son, fyrr­ver­andi þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins, hefur þýtt bók­ina Þjóða­plágan íslam á íslensku. Bókin heitir á frum­mál­inu Islam. Den 11. landeplage og er eftir Hege Storhaug, norska bar­áttu­konu gegn múslimum sem gagn­rýnd hefur verið fyrir að ala á hatri gegn inn­flytj­endum. Sjálfur vakti Magnús Þór athygli fyrir nokkrum árum þegar hann lagð­ist gegn því að Akra­ness­bær tæki á móti þrjá­tíu palest­ínskum flótta­mönnum. Nýlega réði útgáfu­fé­lagið Vef­pressan, sem gefur meðal ann­ars út Pressuna.is, Eyjuna.is og DV, hann sem rit­stjóra blaðs­ins Vest­ur­land.

Bók Hege Storhaug er seld í Eymunds­son og í Bókabúð Máls og menn­ingar. Mál og menn­ing geymdi bók­ina fyrst um sinn í skúffu á bak við afgreiðslu­borðið og til að kaupa bók­ina þurfti að biðja sér­stak­lega um hana. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var Þjóða­plágan íslam einnig höfð í felum í Eymunds­son á Skóla­vörðu­stíg þar til nýlega. Hún rataði á íslenskan met­sölu­lista í síð­ustu viku en fékk þó ekki að prýða met­sölu­bóka­hillu búð­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár