Bjóða hjúkrunarfræðingum frítt á tónleika

Gefa fimm hund­ruð miða á tón­leik­ana Höfundur óþekktur í Hörpu. Stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing til hjúkr­un­ar­fræð­inga í til­efni 100 ára kosn­inga­réttar kvenna.

Stuðningsyfirlýsing
Stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing Diljá segir fram­takið stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hjúkr­un­ar­fræð­inga og vona að það muni gleðja þá á erf­iðum tímum. Mynd: Kristinn Magnússon

Aðstand­endur tón­leik­anna Höfundur óþekktur og afmælis­nefnd 100 ára kosn­inga­réttar kvenna hafa ákveðið að bjóða hjúkr­un­ar­fræð­ingum frítt á tón­leik­ana næst­kom­andi föstu­dags­kvöld. Alls verða fimm hund­ruð miðar gefnir og fær hver hjúkr­un­ar­fræð­ingur að hámarki tvo miða. „Í stað þess að bjóða ráða­mönnum og emb­ætt­is­fólki, sem yfir­leitt fá boðsmiða á svona við­burði, fannst okkur ákveðnir hópar í þjóð­fé­lag­inu eiga skilið boðsmiða,“ segir Diljá Ámunda­dóttir skipu­leggj­andi tón­leik­anna í sam­tali við Stundina. „Í ljósi þess sem á undan hefur gengið á síð­ustu dögum fannst okkur þessi hópur sér­stak­lega vel til þess fall­inn að fá boð.“

Diljá hafði sam­band við Ólaf G. Skúlason, for­mann Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga, í morgun sem tók vel í fram­takið. „Þau litu á þetta sem stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu og þótt­ist viss um að þetta myndi gleðja fólk á þessum erf­iðu tímum,“ segir Diljá. Hjúkr­un­ar­fræð­ingar geta nálg­ast mið­ana í Hörpu gegn fram­vísun skír­teina. Félagar eru hvattir til að mæta saman og eiga góða kvöld­stund. 

Ögra viðteknum venjum

Tón­leik­arnir eru hluti af hátíð­ar­höld­unum á kven­rétt­inda­dag­inn 19. júní næst­kom­andi. Í aug­lýs­ingu fyrir tón­leik­ana segir að við­teknum venjum verði ögrað og kast­ljós­inu beint að sjald­séðum fyr­ir­myndum. „Hug­myndin 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaradeilur 2015

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár