Bjarni fær stjórnarmyndunarumboðið: „Fullur vilji til að ræða við Framsóknarflokkinn“

Bjarni Bene­dikts­son fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið eftir fund með Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta Íslands í morgun. Hann hefur fram yfir helgi til að mynda rík­is­stjórn. Bjarni úti­lokar engan flokk, en segir rík­is­stjórn A, C og D mjög knappa. Þá segir hann fullan vilja til að ræða við Fram­sókn­ar­flokk­inn um myndun rík­is­stjórnar.

Bjarni fær stjórnarmyndunarumboðið: „Fullur vilji til að ræða við Framsóknarflokkinn“

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhann­es­son bðaði Bjarna Bene­dikt­son, for­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á sinn fund á Bessa­stöðum í dag kl. 11. Þar var honum veitt stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið. Að loknum fundi þeirra ræddi for­seti við fjöl­miðla. Þar sagði hann væn­leg­ast til árang­urs að veita Sjálf­stæð­is­flokknum umboðið. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er langstærsti flokkur lands­ins eftir síð­ustu kosn­ingar. Fjöl­miðlar hafa greint frá því að Bjarni og Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, hafa rætt saman og Björt fram­tíð tekur ágæt­lega í hug­mynd um hægri stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn. 

Bjarni sagði við kom­una á Bessa­staði að það yrði flókið að mynda rík­is­stjórn útaf þeirri sér­stöku stöðu að ekki er hægt að mynd tveggja flokka rík­is­stjórn. Hann var hins vegar bjart­sýnn á að það ætti eftir að ganga vel. Bjarni var meðal ann­ars spurður hvort hann myndi ræða við Viðreisn og Bjarta fram­tíð um myndun rík­is­stjórnar. Hann sagð­ist ætla að ræða við alla.

Guðni fund­aði með for­mönnum flokka sem eiga sæti á Alþingi á mánu­dag og kann­aði við­horf þeirra til stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna. 

Í sam­tali við fjöl­miðla sagði Guðni að í þeim hafi komið fram skiptar skoð­anir um hver næstu skref ættu að vera. En engar skýrar línur. Eins og sakir standa mat hann svo að væn­leg­asta leiðin til mynd­unar rík­is­stjórnar væri að veita Sjálf­stæð­is­flokki stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið. Þá sagði Guðni að um helg­ina eða í byrjun næstu viku muni Bjarni gefa for­seta skýrslu um gang við­ræðna og í fram­hald­inu verði tekin ákvörðun um næstu skref. 

Ekki með fyrirframgefna niðurstaða

Bjarni sagð­ist ætla að eiga sam­tal við for­menn allra flokka um myndun rík­is­stjórnar og sagð­ist ætla að nýta tím­ann vel. Hann sagði hins vegar að myndun rík­is­stjórnar gæti tekið langan tíma, sér­stak­lega þar sem ekki væri hægt að mynda tveggja flokka stjórn. Aðspurður hver væri hans ósk­a­ríks­stjórn sagð­ist Bjarni ekki vera með neina fyr­ir­fram­gefna nið­ur­stöðu og vill ekki úti­loka neitt. Þá sagði hann ákveðna þver­sögn í því að fólk sem hafi talað fyrir breið­ara sam­starfi verði síðan upp­teknir af því að úti­loka hvorn eftir kosn­ingar. 

„Þetta er aug­ljós­lega einn mögu­leiki og gall­inn við hann er hversu knappur hann er.“ 

Bjarni sagði rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar vera mjög knappan meiri­hluta. „Þetta er aug­ljós­lega einn mögu­leiki og gall­inn við hann er hversu knappur hann er,“ sagði hann. Aðspurður hvort hann gæti hugsað sér að mynda rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokki sagði hann alls ekki vilja úti­loka að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn geti átt aðild að næstu rík­is­stjórn. „Það er fullur vilji til að ræða við Fram­sókn­ar­flokk­inn.“

Fréttin verður upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár