Útlendingastofnun vill senda ólétta konu og börn til Nígeríu: Biður um að fá að fæða barnið hér

Regina Osamruma­ese og synir hennar, Felix litli og Daniel, hafa fengið synjun á Íslandi og verða að öllu óbreyttu send nauðug viljug til Nígeríu. Lögmaður Reginu fer fram á að hún fái frest meðan hún gengur með sitt þriðja barn.

Útlendingastofnun vill senda ólétta konu og börn til Nígeríu: Biður um að fá að fæða barnið hér

Ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar og úrskurði kæru­nefndar útlend­inga­mála um að Reginu Osamruma­ese og tveimur sonum hennar sé synjað um hæli á Íslandi verður skotið til dóm­stóla. Þetta stað­festir Gísli Kr. Björns­son, lög­maður Reginu, í sam­tali við Stundina, en hann bauð fram aðstoð sína eftir að Kvenna­blaðið fjall­aði um mál hennar í síð­ustu viku. Regina er frá Nígeríu og á tvo syni, þá Daniel og Felix en sá yngri fædd­ist hér á landi. Hún er ólétt af sínu þriðja barni en Útlend­inga­stofnun ætlar að senda hana til Nígeríu þar sem ríkt hafa átök milli stjórn­ar­hers­ins í land­inu og hryðju­verka­sam­tak­anna Boko Haram um ára­bil. 

Regina og börn
Regina og börn Stundin fékk leyfi Jórunnar Eddu Helga­dóttur fyrir því að birta myndir sem hún tók nýlega af Reginu og börnum hennar.

Þegar Stundin fjall­aði um mál Reginu þann 20. mars síð­ast­lið­inn sagð­ist hún þreytt og buguð vegna stöðugrar óvissu um fram­tíð barna sinna. Regina hefur ekki farið til Nígeríu frá því hún flúði þaðan ásamt systur sinni aðeins sex ára gömul. Fyrstu árin bjuggu þær í Líbíu, en leiðir þeirra systra skildu árið 2008 þegar Regina hélt til Ítalíu en systir hennar aftur til Nígeríu. Á Ítalíu kynnt­ist Regina barns­föður sínum og þar fædd­ist eldri sonur þeirra, Daniel. Hann er á fjórða ári, sækir leik­skóla í Reykja­nesbæ og talar íslensku. Yngri son­ur­inn, Felix, er tæp­lega tveggja ára og fædd­ist hér á landi. 

Daniel
Daniel

Fram kemur í umfjöllun Kvenna­blaðs­ins að Regina sé komin um 12 vikur á leið; báðir synir hennar hafi verið teknir með keis­ara­skurði og lík­legt sé að þess ger­ist einnig þörf hjá hennar þriðja barni. „Stundum vildi ég að þetta væri bara ég, að ég ætti engin börn. Ég veit ekki hvernig ég á að hugsa um þau ef mér verður hent úr landi,“ sagði Regina þegar Stundin ræddi við hana í mars. Þá hafði kæru­nefnd útlend­inga­mála kveðið upp sinn loka­úr­skurð og stað­fest synjun Útlend­inga­stofn­unar um dval­ar­leyfi.  

Felix og Daníel
Felix og Daníel

Gísli hefur sent Útlend­inga­stofnun beiðni um að brott­vísun Reginu og barna hennar verði frestað meðan höfðað verður mál fyrir dóm­stólum til ógild­ingar á ákvörðun stofn­un­ar­innar. „Þetta er auð­vitað sér­stak­lega mik­il­vægt á meðan hún gengur með barnið. Fram kemur í úrskurði Útlend­inga­stofn­unar að máls­höfðun fyrir dóm­stólum fresti ekki rétt­ar­á­hrifum, en ég bið um frest á þessum grund­velli,“ segir Gísli í sam­tali við Stundina.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár