Beit í stórt bein í beikonpylsu

Bein fannst í beikon­pylsu frá Ali á föstu­dag­inn. Fram­kvæmda­stjóri Ali, Sveinn Njálsson, segir þetta alltaf geta komið fyrir en sagð­ist þurfa að sjá aðskota­hlut­inn til þess að úrskurða hvort um brjósk eða bein væri að ræða.

Beit í stórt bein í beikonpylsu
Bein í beikon­pyls­unni Fram­kvæmda­stjóri Ali er ekki viss hvort um brjósk eða bein sé að ræða. Sá sem tuggði þetta segir þó engan vafa liggja á því. Bein var það.

Bein fannst í beikon­pylsu frá Ali á laug­ar­dag­inn en sá sem fann beinið hafði þegar borðað eina pylsu þegar hann beit í eitt­hvað sem hann sagði „virki­lega hart“, eitt­hvað sem hann hafði aldrei fundið fyrir undir tönn í pylsu áður.

„Hélt fyrst hrein­lega að þetta væri steinn því þetta var svo hart.“

„Ég var að fá mér eitt­hvað í flýti og skellti þessum beikon­pylsum á pönn­una. Fékk mér eina og síðan þegar ég var nýbyrj­aður á hinni þá finn ég fyrir ein­hverju sem ekki var hægt að tyggja. Hélt fyrst hrein­lega að þetta væri steinn því þetta var svo hart. Þegar ég tók þetta út úr mér þá kom í ljós að þetta var bein með blóð­merg,“ segir Davíð Guð­brands­son, sem ekki hafði lyst á að borða fleiri pylsur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár