Svæðið í kringum Víkingakrána er orðið ævintýralegt – á milli gamaldags húsanna á svæðinu má finna fólk í gervi víkinga sem selur varning sinn í tjöldum, eldsmiðir hamra járnið á meðan það er heitt, flautuleikari tálgar flautu og blæs í hana af og til, víkingar berjast með sverði og skildi, sumir í hópnum syngja og spila á hljóðfæri og nokkrir lambskrokkar eru grillaðir yfir opnum eldi.
Trjákurl liggur yfir annars steyptu svæðinu svo það er líkast því að ganga á nakinni jörðinni á öðrum tíma. Í annarri veröld.
Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.
Bardagamenn, glóandi járn og fornir taktar
Á þriðja hundrað manns í gervi víkinga sótti hina árlegu víkingahátíð við Fjörukrána. Elín Reynisdóttir, Elísabet Stefánsdóttir, Natalía Ósk Ríkharðsdóttir Snædal, Sigurbjörn Björnsson og Sæmundur Örn Kjærnested eru öll í víkingafélaginu Rimmugýgi þar sem félagar hafa kost á að læra bardagaaðferðir að víkingasið, þeir vinna handverk í stíl víkinganna og syngja og spila eins og talið er að víkingar hafi gert. Fimmmenningarnir klæddu sig að sið víkinga og tóku þátt í að töfra fram þau víkingaáhrif sem þarf á hátíðum sem þessum.
Athugasemdir