Hjúkrunarfræðingurinn Ásta Kristín sýknuð - fagnað í dómssal

Ásta Kristín Andr­és­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur sem var ákærð fyrir mann­dráp af gáleysi, hefur verið sýknuð. Lófatak heyrð­ist í dóms­sal þegar sýknu­dómur var kveð­inn upp yfir henni.

Hjúkrunarfræðingurinn Ásta Kristín sýknuð - fagnað í dómssal
Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur Mynd: Heiða Helgadóttir

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur var rétt í þessu sýknuð af ákæru fyrir mann­dráp af gáleysi. Henni var gefið að sök að hafa borið ábyrgð á dauða Guð­mundar Más Bjarna­sonar sem lést á gjör­gæslu Land­spít­al­ans 3. októ­ber 2012. Átti hún að hafa gleymt að tæma loft úr svoköll­uðum kraga sem teng­ist önd­un­ar­vél og þannig hindrað að sjúk­ling­ur­inn gæti andað frá sér. Ásta Kristín sagði sögu sína í ítar­legu við­tali í Stund­inni í síð­asta mán­uði. Þar sagði hún meðal ann­ars að síð­ustu þrjú ár hafa verið ár martraða og van­líð­unar. Þeir tímar hafi komið að hún vildi helst fá að deyja frá þeirri þján­ingu sem fylgir ásök­un­inni.

Færri komust að en vildu í dóms­salnum í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun en fjöl­margir úr heil­brigð­is­stéttum lands­ins komu til að veita Ástu stuðn­ing. Það var til­finn­inga­rík stund þegar sýknu­dóm­ur­inn var kveð­inn upp og margir við­staddir klöpp­uðu.  

Í sam­tali við Stundina í morgun sagði Ásta Kristín að sér væri létt. „Mikill léttir,“ sagði hún. Að öðru leyti vildi hún ekki tjá sig um dóm­inn að svo stöddu.

„Nið­ur­staðan er í sam­ræmi við vænt­ingar,“ segir Einar Gautur Stein­gríms­son, lög­maður Ástu, í sam­tali við Stundina. „Ég tel að það hafi komið í ljós í aðal­með­ferð að ákæran feng­ist ekki stað­ist, aðal­lega vegna þess að rann­sóknin mis­heppn­að­ist og leiddi ekki hið rétta í ljós.“

„Rann­sóknin mis­heppn­að­ist og leiddi ekki hið rétta í ljós.“

Fékk áfall og tók á sig sök

Guð­mundur hafði geng­ist undir hjarta­að­gerð tveimur vikum áður en hann lést og glímdi þess utan við fleiri kvilla. Meðal þess sem Ásta gerði á umræddri vakt varð­andi Guðmund var að aftengja önd­un­ar­vél hans og setja hann á svo­kall­aðan tal­ventil sem gerir sjúk­lingnum kleift að anda að sér í gegnum háls og frá sér um munn­hol. Tæpum hálf­tíma eftir að slökkt var á önd­un­ar­vél­inni lést Guð­mundur.

Þegar skipt er yfir á tal­ventil er nauð­syn­legt að loft­tæma belg í bark­arauf­ar­rennu til að loftið kom­ist út um munn. Ef það er ekki gert nær sjúk­ling­ur­inn ekki að anda frá sér og kafnar. Ekkert liggur fyrir um að Ásta Kristín hafi ekki lof­tæmt blöðr­una þegar hún slökkti á önd­un­ar­vél­inni. Það er raunar ekk­ert heldur sem segir að hún hafi loft­tæmt. Ásökunin á hendur Ástu byggir á því einu að hún taldi að spít­al­inn hefði stað­fest­ingu þess að þessi hand­vömm hefði átt sér stað. Þess vegna tók hún ekki fyrir það við skýrslu­töku en greip til sjálfs­á­sök­unar sem fólst í því að við­ur­kenna að þetta hlyti að vera ástæðan fyrir and­lát­inu. Rannsókn máls­ins gekk út á það að sanna að Ásta Kristín bæri ábyrgð og hefði orðið sjúk­lingnum að bana með van­rækslu. Ekki var spurt um sér­fræði­á­lit spít­al­ans varð­andi and­látið og hug­an­lega aðrar ástæður svo sem slím­tappa eða ein­fald­lega and­lát mjög veiks sjúk­lings. 

„Ég hefði haldið að lög­reglan ætti að skoða málið frá öllum sjón­ar­hornum en ekki ein­blína á einn þátt. Þótt ég brygð­ist svona við að taka fús­lega á mig sök­ina og við­ur­kenna að hugs­an­lega hefði ég ekki loft­tæmt tal­ventil­inn var það ómark­tækt. Ég fékk ein­fald­lega áfall og tók strax á mig sök,“ sagði Ásta Kristín meðal ann­ars í við­tali við Stundina. 

Ákæra ekki í samræmi við krufningarskýrslu

Fram kom í fram­burði yfir­læknis gjör­gæslu að lýs­ing krufn­ing­ar­skýrslu á lungum og augum styddu engan veg­inn að and­látið hafi borið að með þeim hætti sem fram kemur í ákæru. Þvert á móti bendi ummerki til að svo hafi alls ekki verið. Miklu frekar gæti slím­tappi hafa komið ofar­lega í önd­un­ar­færi. Slíkur tappi þarf ekki endi­lega að loka loft­leið alveg eða þegar í stað. Það getur skýrt þann tíma sem leið frá því önd­un­ar­vél var tekin úr sam­bandi og þar til blóð­þrýst­ingur féll. Útilokað er að maður lifi í 25 mín­útur án þess að geta andað frá sér.

„Lög­reglan afl­aði sér að mínu mati ekki lækn­is­fræði­legs sér­fræði­á­lits á atvik­inu sjálfu og því sem mér var gefið að sök,“ sagði Ásta. „Einnig spurði rann­sókn­ar­lög­reglan ekki spít­al­ann út í rót­ar­grein­ingu hans á atvik­inu. Það kom fram eftir ákæruna. Þessi fram­ganga lög­regl­unnar gagn­vart mér var þung­bær. Um tíma var ég farin að skil­greina mig sem glæpa­hjúkku. Sjálfs­mynd mín var í molum. Þetta gerð­ist vegna þeirrar sýnar sem lög­reglan hafði á atvikið og orða­lagi ákærunnar. Það mátti lesa út úr ummælum þeirra í fjöl­miðlum að á gjör­gæsl­unni væri mann­eskja sem hefði aðhafst eitt­hvað glæp­sam­legt.“

Sak­sókn­ari krafð­ist aðeins sex mán­aða skil­orðs­bund­ins fang­elsis yfir Ástu Kristínu, sem er í litlu sam­ræmi við ásak­anir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár