Ari biðst afsökunar á „klaufalegu orðalagi“

For­stjóri MS dregur til baka ummæli sín um að neyt­endur borgi sekt Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Ari biðst afsökunar á „klaufalegu orðalagi“

Ari Edwald, for­stjóri MS, biðst afsök­unar á „klaufa­legu orða­lagi“ þar sem gefið var í skyn að neyt­endur myndu á end­anum borga þá sekt sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið lagði á fyr­ir­tækið í síð­ustu viku. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem hann sendi út rétt í þessu. 

„Neyt­endur munu ekki bera mögu­lega sekt­ar­greiðslu MS. Umræða um sekt er heldur ekki tíma­bær þar sem mál­inu er ekki lokið og fer nú til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála. MS gerir sér sterkar vonir um að end­an­leg nið­ur­staða í þessu máli muni ekki fela í sér við­ur­lög fyrir MS,“ skrifar hann og bætir því við að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins hafi alltaf lagt ríka áherslu á að starfa í sam­ræmi við lög og reglur.

Á fimmtu­dag­inn birti Sam­keppn­is­eft­ir­litið ákvörðun sína um að 480 millj­óna króna stjórn­valds­sekt yrði lögð á Mjólk­ur­sam­söl­una ehf. vegna alvar­legra brota á sam­keppn­is­lögum. Fram kom að MS hefði mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með því að selja keppi­nautum sínum grund­vall­ar­hrá­efni til fram­leiðslu á mjólk­ur­vörum á óeðli­lega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengdir aðilar fengu þetta hrá­efni á mun lægra verði, og að auki undir kostn­að­ar­verði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár