Annar skipverjanna sagðist hafa séð tvær stelpur í aftursætinu

Annar skip­verj­anna af græn­lenska tog­ar­anum Polar Nanoq, hringdi í kærust­una sína í Græn­landi og lýsti fyrir henni það sem hann man um aðfara­nótt laug­ar­dags­ins 14. jan­úar, nótt­ina sem Birna hvarf.

Annar skipverjanna sagðist hafa séð tvær stelpur í aftursætinu
Sá tvær stelpur Nikolaj, sem var mjög ölv­aður aðfara­nótt laug­ar­dags­ins 14. jan­úar, seg­ist hafa séð tvær stelpur aftan í rauða Kia Rio-bíla­leigu­bílnum. Hann veit þó ekki hvenær hann sá þær eða hvar hann var staddur.

Nikolaj Olsen, annar þeirra skip­verja sem situr í gæslu­varð­haldi grun­aður um aðild að hvarfi Birnu Brjáns­dóttur, seg­ist hafa verið ofurölvi aðfara­nótt laug­ar­dags­ins 14. jan­úar og ber við nán­ast algjöru minnis­leysi sökum þess, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Hann seg­ist ekki muna eftir því að hafa stígið upp í rauða Kia Rio-bíla­leigu­bíl­inn umrædda nótt.

Frá þessu greindi Nikolaj í sím­tali sem hann átti við kærust­una sína í Græn­landi. Nikolaj hringdi í hana þegar græn­lenska tog­ar­anum var snúið við vegna rann­sóknar máls­ins og honum siglt aftur til hafnar í Hafn­ar­firði.

Nikolaj Olsen
Nikolaj Olsen Hringdi í kær­ustu sína þegar hann var á leið í land og sagð­ist hafa séð tvær stelpur aftan í rauða Kia Rio-bíla­leigu­bílnum. Hann sagð­ist þó ekki vita hvenær hann sá þær eða hvar hann var staddur.

Þá sagð­ist Nikolaj ekki heldur muna eftir því að hafa gengið um borð í togar­ann rétt eftir 06:10 á laug­ar­dags­morgn­inum en líkt og fjöl­miðlar hafa greint frá sést Nikolaj ræða við hinn skip­verj­ann sem er í gæslu­varð­haldi, Thomas Møller Olsen, í eina til tvær mín­útur, áður en sá síð­ar­nefndi ekur á brott.

En Nikolaj man eftir einu veiga­miklu atriði. Einu örstuttu en mik­il­vægu augna­bliki sem, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, hefur gefið lög­reglu ástæðu til þess að halda að menn­irnir tveir hafi ekki sam­ræmt fram­burði sína.

Veit ekki klukkan hvað eða hvar

Á ein­hverjum tíma­punkti aðfara­nótt laug­ar­dags­ins 14. jan­úar, eftir að hafa drukkið ótæpi­lega á skemmti­stað í mið­borg Reykja­víkur, seg­ist Nikolaj hafa litið í aft­ur­sæti rauða Kia Rio-bíla­leigu­bíls­ins, sem Thomas Møller ók, og séð tvær stelpur. Nikolaj seg­ist ekki vita klukkan hvað hann sá stelp­urnar eða hvar hann var staddur. 

Líkt og Stundin hefur greint frá reyndi Nikolaj ítrekað að ná sam­bandi við íslenska vin­konu sína aðfara­nótt laug­ar­dags­ins 14. jan­úar. Sumar hring­ing­arnar áttu sér stað á sama tíma og talið er að Birna hafi verið í rauða Kia Rio-bíla­leigu­bílnum.

Grímur Grímsson, yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir lög­reglu nú vera að rann­saka þessar upp­lýs­ingar. Ekki er vitað hvort Nikolaj muni eftir þessum sím­hring­ingum eða ástæðu þess að hann var að reyna að ná í vin­konu sína umrætt kvöld. Vinkona Nikolaj starf­aði á skemmti­stað í mið­borg Reykja­víkur og var á vakt aðfara­nótt laug­ar­dags­ins 14. jan­úar þegar Nikolaj var vísað út vegna ölv­unar eftir að hann sofn­aði á einum af borðum stað­ar­ins í kjöl­far þess að hafa unnið átta stóra bjóra í lukku­hjóli stað­ar­ins.

Hættir að hringja rétt áður en Birna hverfur 

Nikolaj reyndi að hringja níu sinnum umrædda nótt. Hann hringdi fimm sinnum frá 03:55 til 05:19 en hætti síðan að hringja. Nokkrum mín­útum síðar er Birna talin hafa farið inn í rauða Kia Rio-bíla­leigu­bíl­inn. Nikolaj heldur síðan áfram að hringja rúmum fjöru­tíu mín­útum síðar eða klukkan 06:03. Það er rétt eftir að rauð bif­reið næst á örygg­is­mynda­vél í áhalda­húsi Golf­klúbbs Kópavogs og Garða­bæjar og skömmu áður en bíla­leigu­bíll­inn sést við Hafn­ar­fjarð­ar­höfn þar sem hann var stöðv­aður við togar­ann, klukkan 06:10. Nikolaj hringdi aftur 06:04 og aftur 06:44. Síðasta til­raun Nikolaj til að ná í vin­konu sína var síðan klukkan 11:55.

En af hverju hætti Nikolaj að hringja nokkrum mín­útum áður en að talið er að Birna hafi farið upp í rauða Kia Rio-bíla­leigu­bíl­inn? Sofnaði hann eða var hann að ræða við Birnu? Voru tvær stelpur í bílnum eða sá hann tvö­falt vegna ölv­unar? Þessum og fjölda ann­arra spurn­inga er ósvarað og reynir lög­reglan nú að púsla saman atburð­ar­rásinni með þeim fjölda ábend­inga, mynd­skeiða, ljós­mynda og sönn­un­ar­gagna sem hún hefur bæði fengið sent og aflað frá því rann­sóknin á hvarfi Birnu hófst.

Sagði hafa verið kastað upp yfir úlpuna

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu liggur engin játn­ing fyrir í mál­inu og báðir menn neita sök. Lög­reglan hefur und­an­farna daga yfir­heyrt báða menn­ina en Grímur segir að engar yfir­heyrslur fari fram í dag en þeim sé þó ekki lokið.

Frétta­blaðið greindi frá því í dag að á meðal sönn­un­ar­gagna lög­reglu, sem lagt var hald á við leit í Polar Nanoq í síð­ustu viku, væri úlpa þriðja skip­verj­ans sem var hand­tek­inn nokkrum klukku­stundum á eftir Nikolaj og Thomas Møller. Samkvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins hafði mað­ur­inn gleymt úlp­unni í rauða Kia Rio-bíla­leigu­bílnum.

Thomas Møller Olsen
Thomas Møller Olsen Samkvæmt skip­verjum um borð á Polar Nanoq gaf Thoms Møller þá skýr­ingu að kastað hefði verið upp á úlpu eins skip­verj­anna aðfar­arnótt laug­ar­dags­ins, eftir að hann hafði skilið hana eftir í bíla­leigu­bílnum sem hann leigði.

Það hafi vakið athygli skip­verj­ans á laug­ar­deg­inum að búið væri að þvo úlpuna hans. Hann hafi þó ekki hugsað mikið um það, ekki fyrr en Polar Nanoq var snúið við á þriðju­dag­inn í síð­ustu viku. Þá hafi vaknað grun­semdir hjá mann­inum, sem urðu til þess að hann gaf sig fram við sér­sveit Rík­is­lög­reglu­stjóra, sem þá var komin um borð í togar­ann. Eiganda úlpunnar var sleppt að loknum yfir­heyrslum en lög­reglan taldi sig geta úti­lokað aðild hans að mál­inu.

Þetta kemur heim og saman við heim­ildir Stund­ar­innar. Samkvæmt þeim gaf Thomas Møller þá skýr­ingu að kastað hafi verið upp yfir úlpuna í bíla­leigu­bílnum og því hafi hann tekið sig til og þrifið hana.

Þekkja Grindavíkurveg vegna Bláa lónsins

Þá greindi DV og síðar frétta­stofa RÚV frá því á þriðju­dag­inn að skil­ríki Birnu hafi fund­ist við leit lög­regl­unnar í græn­lenska tog­ar­anum Polar Nanoq. Samkvæmt heim­ildum RÚV fund­ust skil­ríkin í rusla­fötu. 

Lög­reglan telur að rauða Kia Rio-bíla­leigu­bílnum hafi verið ekið um 300 kíló­metra á meðan hann var í leigu. Samkvæmt útreikn­ingum lög­regl­unnar, þegar búið er að draga frá áætl­aðan akstur innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, standa eftir 100 til 150 kíló­metrar sem nú er verið að reyna að kort­leggja. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar telja þeir sem þekkja til áhafn­ar­innar að bíla­leigu­bílnum hafi að öllum lík­indum verið ekið suður Reykja­nes­braut og síðan Grinda­vík­ur­veg­inn í átt að Suð­ur­strand­ar­vegi.

„Þeir þekkja bara mið­borg­ina í Reykja­vík og síðan Bláa lónið. Þetta eru eig­in­lega einu tveir stað­irnir sem þessir skip­verjar fara á. Þegar ég las í fréttum að lög­reglan væri að skoða hvaða leið var ekið þennan morgun þá hugs­aði ég strax um Grinda­vík­ur­veg­inn,“ segir Íslend­ingur sem hefur aðstoðað útgerð­ina Polar Seafood sem á og rekur Polar Nanoq. Nokkrar leiðir koma þó til greina þegar aka á frá Hafn­ar­fjarð­ar­höfn að Sel­vogs­vita og er leiðin um Grinda­vík­ur­veg ein þeirra.

Skoða öldufar og sjávarstrauma

Lík Birnu fannst við Sel­vogs­vita á sunnu­dag­inn en lög­reglan telur lík­legt að hún hafi verið sett í sjó ann­ars staðar og að sjór­inn hafi borið hana upp í fjör­una. Vega­gerðin hefur meðal ann­ars aðstoðað við rann­sókn máls­ins og hefur komið upp­lýs­ingum um öldu­far og sjáv­ar­strauma á þessu svæði frá þeim tíma sem Birna hvarf í mið­borg Reykja­víkur og til sunnu­dags­ins 22. jan­úar, þegar lík hennar fannst.

Lög­reglan reynir enn að kort­leggja ferðir bif­reið­ar­innar frá því hún stöðvast við Hafn­ar­fjarð­ar­höfn rétt eftir klukkan sex, laug­ar­dags­morg­un­inn 14. jan­úar. Samkvæmt frétta­flutn­ingi sást annar mað­ur­inn ganga um borð í togar­ann en hinn ók á brott. Þá hefur lög­reglan greint frá því að ummerki á bíla­leigu­bílnum gefa til kynna að honum hafi verið ekið um grýttan veg.

Þau sem hafa upplýsingar um málið eru hvött til að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Birnu Brjánsdóttur

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sakbornings
Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár