Eigandi Players og fyrrverandi aðstoðarmaður þingmanns ákærðir fyrir að flytja inn vín og sveigja fram hjá skatti

Sér­stakur sak­sókn­ari hefur ákært Hendrik Her­manns­son og Halldór Leví Björns­son fyrir fjár­svik í tengslum við inn­flutn­ing á sjö þús­und vín­flöskum.

Eigandi Players og fyrrverandi aðstoðarmaður þingmanns ákærðir fyrir að flytja inn vín og sveigja fram hjá skatti

 

Sér­stakur sak­sókn­ari hefur gefið út ákæru á Hendriki Birni Her­manns­syni og Halldóri Leví Björns­syni. Báðum er gefið að sök að hafa stundað fjár­svik í mars og apríl árið 2012 í tengslum við inn­flutn­ing á áfengi. Hendrik hefur áður kom­ist í kast við lögin og var til að mynda árið 2008 gert að greiða 77 millj­ónir króna í fjár­sekt vegna svika á vörslu­sköttum. Halldór Leví er fyrr­ver­andi for­maður Þroska­hjálpar á Suð­ur­nesjum, en árið 2011 var hann bendl­aður við fjár­drátt hjá sam­tök­unum. Ósamræmi var í bók­haldi sam­tak­anna en hætt var við lög­reglu­rann­sókn í kjöl­far þess að Halldór Leví end­ur­greiddi upp­hæð­ina. Halldór Leví starf­aði enn fremur sem aðstoð­ar­maður Bjarkar Guð­jóns­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hendrik er í dag annar eig­andi Players í Kópavogi en hann eign­að­ist skemmti­stað­inn ásamt Magnúsi Stein­þórs­syni úrsmiði á dög­unum.

„Þetta á ekki við nein rök að styðj­ast,“ segir Hendrik í sam­tali við Stundina. Hann seg­ist ekki reiðu­bú­inn að lýsa sinni hlið á mál­inu fyrr en hann hafi rætt við lög­menn sína, en hann muni skýra sína hlið á mál­inu á næst­unni.

Halldór Leví Björnsson
Halldór Leví Björns­son Halldór er fyrrum aðstoð­ar­maður Bjarkar Guð­jóns­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann var enn fremur for­maður Þroska­hjálpar á Suð­ur­nesjum
 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu