Af hverju að elda sous vide?

Ef þú tekur þig alvarlega í eldhúsinu en hefur ekki prófað að elda sous vide þá er kominn tími til að þú hugsir þinn gang. Í dag er nefnilega enginn maður með mönnum, eða kona með konum, sem ekki kann að elda sous vide.

Í stuttu og einföldu máli byggist sous vide-aðferðin á því að hægelda mat í vatnsbaði og í lofttæmi. Hún er ekki ný af nálinni og hefur verið notuð af atvinnu­kokkum um árabil. Á síðustu árum hefur aðferðin þó færst inn í heimahús, þar sem æ fleiri áhuga­kokkar hafa fært sig upp skaftið og gert tilraunir með aðferðina. Og það er ekki að ástæðu­lausu. Hún þykir nefnilega tryggja hina fullkomnu eldun. Vökvinn og bragðið kjöt­bitans helst til að mynda í honum en hverfur ekki út á grillið eða á pönnuna eins og við hefð­bundna eldun. Aðferðin reynist líka vel þegar elda á fisk. Það eina sem þarf til verksins er plastpoki og vatns­hitastillir, þó til séu sérstakir pokar og vatns­ofnar sem auðvelda verkið. 

1) Settu allt sem þú ætlar að elda í plastpoka og lofttæmdu hann, ýmist með því að þrýsta loftinu út eða með lítilli loft­tæmingarvél. Hægt er að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár