Mynd: Völundur Jónsson

Ætlar að drepa krabbann

Hann byrj­aði á sjó átta ára, er hættur að vinna fyrir útgerð­ar­menn og rær á sínum eigin smá­báti. Hann lifir á land­inu og sjónum, en glímir núna við krabba­mein. Björn Þor­láks­son hitti Ólaf Gunn­ars­son sjó­mann á afmæl­is­dag­inn hans þá nýkom­inn úr geisla­með­ferð, í ver­búð við smá­báta­höfn­ina á Akureyri.

Nú er það spurn­ingin hvort við­brögð fólks við þessu við­tali drepa mig eða hvort krabba­meinið drepur mig. Ætli sé nú samt ekki lík­leg­ast að ég lifi hvort tveggja af,“ segir Ólafur Gunn­ars­son sjó­maður og brosir hæg­lát­lega þegar blaða­maður Stund­ar­innar kveður hann að loknu við­tali á hans „heima­velli“.

Heima­völl­ur­inn hans Óla, eins og hann vill láta kalla sig, er ver­búð niðri við smá­báta­höfn­ina á Akureyri. Þar sátum við í tvo tíma á sunnu­degi og ræddum saman. Þung orð hins reynslu­mikla sjó­manns um mein­gallað kvóta­kerfi, brott­kast og upp­kaup útgerð­ar­manna standa upp úr í því spjalli. Óli er líka húmor­ískur jaxl eins og til­vitn­unin að ofan er dæmi um. Hann tekst nú á við krabba­mein. Er hættur á tog­urum en rær á eigin bát sem oft­ast. Hann seg­ist njóta þess frelsis að geta nú tjáð umdeildar skoð­anir sínar og langar að koma skila­boðum áleiðis, vekja þjóð­ina. Þöggun og þrælsótti skýri hvers vegna ekki sé rætt meira um brott­kastið. Það sé stærra mein en fólk geri sér grein fyrir. Vegna van­met­ins umfangs þess sé öll fisk­veiði­ráð­gjöf mark­laus. Óli við­ur­kennir að hann hefði ekki þorað að segja opin­ber­lega satt um brott­kastið fyrir nokkrum árum þegar hann reri undir fána leið­andi íslenskra útgerða.

Með sjóræningjafána sér við hlið

Þegar við mælum okkur mót í ver­búð­inni er afmæl­is­dagur Óla, hann er 62ja ára. Sjó­mað­ur­inn er nýkom­inn að sunnan úr geisla­með­ferð vegna krabb­meins í lunga þegar fundum okkar ber saman. Hann virð­ist bar­átt­uglaður og æðru­laus í senn. Gómsæt afmæliskringla bíður á borð­inu og búið að hella upp á gott kaffi. Við geymum okkur að ræða sjúk­dóm­inn og talið berst að sófa til hliðar þar sem blasir við mik­ill sjó­ræn­ingja­fáni. Fánann seg­ist Óli hafa fengið að gjöf frá systur sinni. Hann neitar því ekki að flaggið kunni að vera til marks um að í honum búi síð­bú­inn bylt­ing­ar­sinni. Rás 2 rokkar í útvarps­tæk­inu og fyrir utan blasir við fag­urt útsýni, fjöll og smá­bátar. Ekki einn sjón­auki heldur tveir í glugg­anum. Verk­legur hnífur í leð­ur­hulstri á borði. Beittur eins og eig­and­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár