Það sem þú þarft að vita til að tína sveppi

Hér á Íslandi vex þónokkur fjöldi af bragð­góðum æti­sveppum, eins og kóng­sveppur, gor­kúla og kantarellu­sveppur, þótt sá síð­ast­nefndi sé afar sjald­gæfur.

Við hrunið árið 2008 hættu Íslend­ingar að eyða um efni fram og tóku upp ann­ars konar og hóf­sam­ari lífs­stíl, hvort sem þeim lík­aði betur eða verr. Allt í einu fór fólk aftur að prjóna, taka slátur, tína ber og annað nyt­sam­legt sem hafði þótt púkó í góð­ær­inu. Við­gerð­ar­verk­stæði réðu varla við verk­efnin sem hlóð­ust upp, fólk hætti að henda raf­magns­tækjum og fór frekar með þau í við­gerð. Húsgögn úr vöru­brettum komust í tísku og fjöl­skyldu­feður seldu annan bíl­inn því þeir voru farnir að hjóla í vinn­una. Nú, átta árum síðar, hefur hálf­gert góð­æri skollið aftur á, bygg­inga­kranar eru löngu komnir á loft og veðrið er aftur orðið óvenju gott, eins og tíðkast í góð­æri. Sem betur fer virð­ast þó ekki allir jafn ginn­keyptir og áður, og margt af því góða sem við lærðum af hrun­inu hefur hald­ist við. Hjá mörgum fjöl­skyldum hefur það orðið að hefð að fara í berjamó í lok sum­ars, en hjá öðrum er það einnig hefð að tína sveppi, eða fara í sveppamó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár