Framleiðsla snjallsíma byggir á barnaþrælkun

Mann­rétt­inda­sam­tökin Amnesty International telja að 40 þús­und börnum sé þrælað út í kóbalt­námum í Kongó. Kóbalt er nauð­syn­legt við fram­leiðslu á snjall­símum.

Framleiðsla snjallsíma byggir á barnaþrælkun

Mann­rétt­inda­sam­tökin Amnesty International saka tækniris­ana Apple, Samsung og Sony, auk fleiri fyr­ir­tækja, um að standa aðgerð­ar­lausir hjá þegar barna­þrælkun er stunduð við vinnslu á kóbalti sem er nauð­syn­legt við fram­leiðslu á líþ­íum-jóna raf­hlöðum. Slíkar raf­hlöður má finna í flestum nýlegum snjall­símum. Öll fyr­ir­tækin hafa hins vegar svarað skýrsl­unni með yfir­lýs­ingu þar sem því er haldið fram að þau líði ekki barna­þrælkun. Yfir­lýs­ingar fyr­ir­tækj­anna voru nokkuð sam­hljóða, en fyr­ir­tækin og þá sér í lagi Apple hafa áður verið sökuð um barna­þrælkun. BBC greinir frá efni skýrsl­unnar.

Samkvæmt skýrslu Amnesty er um 40 þús­und börnum þrælað út í kóbalt­námum í Kongó, þaðan sem helm­ingur alls kóbalts í heim­inum kemur. Í skýrsl­unni kemur fram að börn allt frá sjö ára aldri starfi við lífs­hættu­legar aðstæður í námunum. Aðstæð­urnar eru hættu­legar öldnum sem ungum, bæði vegna meng­unar sem getur til lengri tíma leitt til sjúk­dóma og eins vegna hætt­unnar á dauðs­föllum við störf. Frá því í sept­em­ber 2014 og fram til des­em­ber 2015 lét­ust að minnsta kosti 80 námu­menn í Suður-Kongó.

Í skýrslu Amnesty eru við­töl við börn sem hafa starfað við námu­gröft. Eitt þeirra, 14 ára mun­að­ar­leys­ingi sem kall­aður er Paul, hóf störf þegar hann var tólf ára. „Ég var í sól­ar­hring niðri í göng­unum. Ég mætti einn morgun og fór heim næsta morgun [...] Ég gekk örna minna í göng­unum [...] Fóst­ur­móðir mín hugð­ist senda mig í skóla en fóst­ur­faðir minn setti sig á móti því og vildi nýta mig með því að senda mig í námu­vinnu.“ 

Skýrslan var unnin í sam­starfi við Afrewatch, óháð sam­tök um eft­ir­lit með hrá­efna­vinnslu í Afríku. „Það er gíf­ur­leg þver­sögn falin í því að sum af rík­ustu og fram­sækn­ustu fyr­ir­tækjum heims geti selt mjög háþróuð tæki án þess að þau þurfi að sýna fram á upp­runa hrá­efna sem notuð eru við fram­leiðslu,“ hefur BBC eftir Emmanuel Umpula, fram­kvæmda­stjóra Afrewatch.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár