Vinstri græn lýsa yfir efasemdum um nýja eigendastefnu borgarinnar

Vinstri græn í Reykjavík segja það vera „tilraun­ar­innar virði“ að skipa tilnefningar­nefnd til þess að skipa stjórnir fyrir­tækja borgarinnar, en telja aðferða­fræðina geta skapað þrýsting á aukna einka­væðingu grunn­þjónustu­verkefna.

Þau þrjú efstu á lista VG fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar sjást hér á mynd. Íris Andrésdóttir sem sat síðasta borgarráðsfund fyrir flokkinn var í 4. sæti á lista í vor.
Þau þrjú efstu á lista VG fyrir síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar sjást hér á mynd. Íris Andr­és­dóttir sem sat síð­asta borg­ar­ráðs­fund fyrir flokk­inn var í 4. sæti á lista í vor. Mynd: Vinstri græn í Reykjavík

Vinstri græn í Reykjavík eru þeirrar skoðunar að það sé „tilraunarinnar virði“ hjá borginni að setja á fót tilnefningar­nefnd, sem skipa á fulltrúa borgarinnar í stjórnir fyrir­tækja sem borgin á hlut í, en segjast þó telja að með aðferða­fræðinni sem beitt sé gæti skapast meiri fjarlægð við þá stefnu­mörkun og skyldur sem stjórn­málamenn eru kjörnir til að sinna, sem skapað gæti þrýsting á aukna einka­væðingu grunn­þjónustu­verkefna.

Borgarráð Reykja­víkur samþykkti á fimmtudag skipan tilnefningar­nefndar, en í henni sitja borgar­fulltrúarnir Þórdís Lóa Þórhalls­dóttir oddviti Viðreisnar sem jafnframt verður formaður nefndarinnar, Einar Þorsteinsson oddviti Fram­sóknar og sjálfstæðis­konurnar Hildur Björns­dóttir og Ragnhildur Alda Vilhjálms­dóttir. Einnig á Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri sæti í nefndinni, en borgar­stjóri fer með eigenda­fyrirsvar fyrir hönd borgarinnar.

Ný eigenda­stefna borgarinnar, sem unnin var á síðasta kjör­tímabili, hefur meðal annars þær breytingar í för með sér að skylda verður fyrir borgina að tilnefna ákveðið hlutfall óháðra stjórnar­manna í stjórnir fyrir­tækja sem borgin á. Þegar stjórnar­menn eru fimm talsins skulu að minnsta kosti tveir teljast óháðir borginni og ekki koma úr röðum kjörinna fulltrúa eða starfs­manna hennar. Ef stjórnar­menn eru sjö eiga þrír stjórnar­menn að teljast óháðir borginni.

Fjallað var um drög að nýju eigenda­stefnunni á Innherja á Vísi í vor og þar haft eftir Þórdísi Lóu oddvita Viðreisnar að verið væri að „minnka pólitík í stjórnum fyrir­tækjanna og innleiða meiri fagmennsku“.

Vinstri græn, sem sátu í meirihluta borgar­stjórnar á síðasta kjör­tímabili, virðast hins vegar vera með efasemdir um útfærsluna sem spratt af vinnu stýrihóps um nýja eigenda­stefnu borgarinnar. Flokkurinn átti þó fulltrúa í þeirri vinnu, en Líf Magneu­dóttir borgar­fulltrúi sat fyrir hönd flokksins í stýri­hópnum sem vann að gerð eigenda­stefnunnar.

Íris Andrésdóttir vara­borgar­fulltrúi sat borgar­ráðsfundinn á fimmtudag sem áheyrnar­fulltrúi fyrir hönd flokksins og lét bóka í fundar­gerð að það væri skoðun Vinstri grænna „að félög í eigu Reykja­víkurborgar og verkefni þeirra eigi að lúta pólitískri stefnu og að framfylgd hennar og eftirlit sé á ábyrgð kjörinna fulltrúa.“

„Pólitískt kjörnir fulltrúar eru aldrei undan­þegnir því að vera faglegir og vandaðir í störfum sínum en með þessari aðferða­fræði sem hér er beitt gæti skapast meiri fjarlægð við þá stefnu­mörkun og skyldur sem stjórn­málamenn eru kjörnir til að sinna. Slíkt gæti skapað þrýsting á aukna einka­væðingu verkefna sem sannarlega eru grunn­þjónusta. Það eru áhyggju­efni fyrir íbúa Reykja­víkur og leggjast Vinstri græn alfarið gegn þeirri þróun,“ sagði í bókun áheyrnar­fulltrúans í borgar­ráði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár