Lögregla rannsakar hvort skotið hafi verið á bíl Dags B. Eggertssonar

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakar nú hvort skot­vopn hafi verið notað er skemmdir voru unnar á bif­reið sem er í eigu Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra og fjöl­skyldu hans. Málið er litið alvar­legum augum.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakar nú hvort skotið hafi verið á bif­reið Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra í Reykja­vík og seg­ist líta málið mjög alvar­legum augum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Lögregla skoðar hvort málið teng­ist öðru máli frá því í síð­ustu viku, þegar skotið var á að minnsta kosti sex rúður í hús­næði Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík við Sóltún í Reykja­vík.

Ekki kemur fram í til­kynn­ingu lög­reglu hvenær skemmd­irnar á bílnum voru unnar.

Eftir að greint var frá því í síð­ustu viku að skotið hefði verið á rúður á skrif­stofu Sam­fylk­ing­ar­innar kom í ljós að ráð­ist hafði verið með svip­uðum hætti gegn skrif­stofum ann­arra stjórn­mála­afla og sam­taka á Íslandi á síð­ustu miss­erum og árum, án þess að fréttir af þeim atvikum hefðu ratað í fjöl­miðla.

Jóhann Karl Þórisson yfir­lög­reglu­þjónn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sagði við Vísi að slík mál hefðu komið upp hjá Viðreisn í jan­úar 2020, Sjálf­stæð­is­flokknum í maí 2020 og Samtökum atvinnu­lífs­ins í sept­em­ber 2020.

Einnig var haft eftir starfs­manni þing­flokks Pírata að skot­göt hefðu fund­ist í rúðum á skrif­stofum flokks­ins árið 2018 og aftur árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár