Eljusamur sonur jarðarberjabænda verður arftaki Abe

Japanska þjóð­þingið mun á morgun setja Yoshihide Suga, nýjan leiðtoga Frjáls­lynda flokksins, formlega í embætti forsætis­ráðherra landsins. Suga er 71 árs gamall og segist gera 200 maga­æfingar á dag.

Yoshihide Suga, verðandi forsætisráðherra Japans.
Yos­hi­hide Suga, verð­andi for­sæt­is­ráð­herra Japans. Mynd: EPA

Á morgun mun japanska þjóð­þingið, Dietið, kjósa sér nýjan forsætis­ráðherra. Fastlega má reikna með því að þar muni nýkjörinn leiðtogi Frjáls­lynda flokksins LDP, Yoshihide Suga, verða kjörinn, enda ákváðu þingmenn flokksins í gær að hann skyldi taka við keflinu af Shinzo Abe, sem hefur yfirgefið stjórnmála­sviðið vegna heilsufars­vandamála.

Suga hefur verið hægri hönd Abe árum saman og helsti talsmaður japönsku ríkis­stjórnarinnar út á við síðustu átta árin. Talið er ólíklegt að stefna stjórn­valda muni breytast mikið þegar Suga tekur við, en hann af flestum talinn ætla að halda áfram á svipaðri braut og fram­fylgja stefnu­málum Abe. „Abenomics“-vaxtar­stefnan í efnahags­málum sem Abe kynnti til sögunnar skömmu eftir að hann tók við hjaðnandi hagkerfi Japans árið 2012 er því ekki talin á útleið.

En Suga er þó um margt ólíkur forvera sínum. Fyrir það fyrsta, þá er Suga sonur jarðarberja­bænda sem nú hefur brotist til æðstu metorða eftir áratuga­langan stjórnmála­feril, 71 árs að aldri. Abe er hins vegar yfirstéttar­maður með stjórn­málin í blóðinu, sonur fyrr­verandi utan­ríkis­ráðherra og afastrákur fyrr­verandi forsætis­ráðherra.

Suga gerði uppruna sinn að umræðu­efni er hann þakkaði þing­mönnum flokksins fyrir að velja sig með yfir­gnæfandi meirihluta í gær. „Án nokkurrar þekkingar eða blóð­tengsla, steypti ég mér inn í heim stjórn­málanna, byrjaði frá grunni og hefur nú tekist að verða leiðtogi LDP, með allar hans hefðir og sögu,“ sagði Suga.

Verðandi forsætis­ráðherra er lögfræðingur að mennt, en hann flutti ungur að aldri úr sveita­samfélaginu í Yuzawa og til Tókíó, þar sem hann starfaði um hríð í pappa­kassa­verksmiðju og einnig á fisk­markaði, til þess að safna sér fyrir háskóla­námi.

Skömmu eftir útskrift úr háskóla fór hann að starfa sem ritari þingmanns frá hafnar­borginni Yokohama. Þar settist hann að og ákvað síðan að það væri hans köllun að beita sér sjálfur í stjórn­málum. Hann bauð sig fram í borgar­stjórn í Yokohama árið 1986, án tengsla og reynslu, en er sagður hafa bætt upp fyrir það með dugnaði.

Sagt er að Suga hafi, í sinni fyrstu kosninga­baráttu, farið hús úr húsi þegar hann var í framboði, heimsótt 300 hús á dag eða 30.000 hús í heildina. Þegar kjördagur rann upp hafði hann gengið sólann úr sex skópörum. Og það hreif. Suga var í borgar­stjórn í Yokohama þar til hann færði sig yfir í lands­málin og var kjörinn á þing árið 1996.

Óumdeildur en ef til vill lítt spennandi

Síðan þá hefur hann unnið sig hægt og bítandi upp metorða­stigann innan flokksins, en það hefur aldrei borið neitt sérlega mikið á honum, þrátt fyrir að honum hafi verið treyst fyrir ráðherra­stöðum og samskiptum ríkis­stjórnarinnar út á við síðustu átta árin, eins og áður var nefnt.

Koichi Nakano, stjórnmála­fræði­prófessor við Sofíu-háskólann í Tókíó, segist í samtali við BBC telja að Shinzo Abe og aðrir helstu leiðtogar flokksins hafi valið Suga til þess að taka við það sem hann væri sá sem væri best til þess fallinn að leiða áfram­haldandi stjórn út þetta kjör­tímabil, sem nær fram í október á næsta ári, með þær áherslur sem Abe hafði sett. Hann væri ekki endilega mest spennandi kosturinn, en sá öruggasti.

Suga er maður sem vaknar á morgnana, les öll helstu dagblöð, gerir 100 maga­æfingar og fer svo í langan göngutúr, sama hvernig viðrar. Svo vinnur hann vinnuna sína og gerir síðan aðrar 100 maga­æfingar á kvöldin, eins og hann lýsti í viðtali við Nikkei í fyrra.

Óljóst þykir hvernig Suga muni ganga að ná hylli kjósenda fari svo að hann verði leiðtogi LDP í næstu kosningum, enda gengur hann ekki inn í glæstar aðstæður. Stjórn­völd þykja ekki hafa náð að ráða neitt sérlega vel við kórónu­veiru­faraldurinn og efnahags­samdrátturinn vegna hans er sá mesti sem Japan hefur upplifað frá upphafi mælinga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár