„Ekki unnt að full­yrða“ að Sig­mundur hafi brotið siða­reglur – Vísað til tjáningar­frelsis hans

Samkvæmt siða­reglum mega þing­menn „ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess“. For­sætis­nefnd telur ekki til­efni til að meta hvort Sig­mundur Davíð hafi brotið regl­urnar með því að full­yrða að þing­menn úr flestum flokkum segi enn ógeðs­legri hluti en sagðir voru á Klaustri.

For­sætis­nefnd Alþingis telur „ekki unnt að full­yrða“ að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hafi brotið gegn siða­reglum þegar hann hélt því fram að mál­flutn­ingur á borð við þann sem var við­hafður á Klaustri þann 20. nóv­em­ber væri alsiða meðal þing­manna og að þing­menn flestra flokka segðu jafn­vel enn gróf­ari hluti en sagðir voru á Klaustri.

Þetta kemur fram í nið­ur­stöðu, sem Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­maður Vinstri grænna og sér­stakur auka­vara­for­seti Alþingis, skrifar undir vegna erindis sem nefnd­inni barst og birt­ist á vef Alþingis í dag. Erindið lýtur að við­brögðum Sig­mundar Davíðs við frétta­flutn­ingi af Klaust­urs­mál­inu, en þar er vísað til þess að sam­kvæmt siða­reglum þing­manna mega þeir „ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni“. 

For­sætis­nefnd vísar sér­stak­lega til tján­ing­ar­frelsis þing­manns­ins og hefur afgreitt málið án þess að vísa því til ráð­gef­andi siða­nefndar.

Fram kemur að í erind­inu hafi meðal ann­ars verið vísað til við­tals í kvöld­fréttum Rík­is­út­varps­ins 3. des­em­ber 2018 þar sem Klaust­urs­málið var til umfjöll­unar. Sig­mundur hafði þá verið stað­inn að þátt­töku í umræðum þar sem þing­konur voru kall­aðar „húrr­andi klikkuð kunta“, „hel­vítis tík“, heim­il­is­of­beldi haft í flimt­ingum og talað um ráð­herra sem „skrokk“ til að „ríða“. 

Aðspurður um málið sagði Sig­mundur að sam­töl sem þessi tíðk­uð­ust meðal þing­manna. Hann hefði heyrt þing­menn segja ýmis­legt sem væri „jafn­vel ennþá og tölu­vert gróf­ara en það sem við höfum heyrt á þessum upp­tökum“.

Þetta end­ur­tók hann í bréfi til flokks­systk­ina sinna nokkru síðar þar sem hann sagði þing­menn vana að að eiga í svona sam­tölum. „Ég hef hlustað á þing­menn flestra flokka úthúða flokks­fé­lögum sínum og nota orð­bragð sem í sumum, jafn­vel mörgum, til­vikum er enn gróf­ara en það sem birst hefur að und­an­förnu,“ skrif­aði hann. 

Steinunn Þóra Árna­dóttir

Í erind­inu til for­sætis­nefndar var því haldið fram að Sig­mundur hefði með þessum mál­flutn­ingi brotið gegn hátt­ern­is­skyldum sínum. For­sætis­nefnd bendir á að þing­menn njóti „ríkrar verndar til þátt­töku í opinni og frjálsri stjórn­mála­um­ræðu í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi“.  Fram kemur að ummæli Sig­mundar Davíðs varði atvik, án frek­ari til­grein­ingar, sem hann telji sig sjálfur hafa upp­lifað og líta verði til þess að ummælin hafi fallið í málsvörn hans vegna Klaust­urs­upp­tak­anna. 

„Rétt er að leggja áherslu á að siða­regl­urnar hafa ekki þann til­gang að tak­marka mögu­leika þing­manna til þess að bregð­ast við frá­sögnum og umfjöllun ann­arra um þá,“ segir í nið­ur­stöðu for­sætis­nefndar. „Siða­regl­urnar geta á hinn bóg­inn, eins og áður segir, sett tján­ingu alþing­is­manns skorður þegar kemur að því að meta hvernig hann hefur komið tján­ingu sinni á fram­færi og við hvaða aðstæður það er gert.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár