Kína og Bandaríkin koma á samskiptaleið vegna atvika tengdum gervigreind

Donald Trump og Xi Jinping ræddu meðal annars gervi­greind, viðskipti og stríðið í Íran á fundi sínum í Washington. Leið­togarnir staðfestu jafnframt að þeir myndu hittast tvisvar til viðbótar á þessu ári.

Fundað
Fundað Donald Trump Banda­ríkja­for­seti tók á móti Xi Jinpin Kína­for­seta í Hvíta hús­inu. Sam­skipti ríkj­anna hafa ein­kennst af átökum und­an­farin miss­eri. Mynd: SAUL LOEB / AFP

Kína og Banda­ríkin hafa samþykkt að koma á fót „samskipta­leið“ vegna atvika tengdra gervi­greind, að sögn beggja ríkja, eftir leiðtoga­fund í Washington þar sem fá stór tíðindi urðu.

Donald Trump Bandaríkja­forseti og Xi Jinping Kína­forseti ræddu allt frá gervi­greind og viðskiptum til stríðsins í Íran, sem hefur staðið í stað, og staðfestu að þeir myndu hittast í þriðja og fjórða sinn á árinu á alþjóð­legum leiðtoga­fundum í Kína og Banda­ríkjunum.

Heimsókn Xi til Washington einkenndist fremur af viðhöfn en efnis­legum árangri. Hvíta húsið greindi þó frá því á föstudag að ríkin hefðu samþykkt að koma á „tvíhliða samskipta­leið“ vegna atvika tengdra gervi­greind.

Kínverskir ríkis­fjölmiðlar staðfestu á laugardag að samkomulag hefði náðst um slíka samskipta­leið þegar þeir greindu frá niður­stöðum fundarins.

Trump hefur ítrekað gert lítið úr ótta um að gervi­greind geti ógnað mann­kyninu en Xi tók varfærnari afstöðu og sagði að tæknin yrði að þróast …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár