Olía heldur áfram að lækka - Tæplega tvö prósent lækkun í dag

Heims­markaðsverð á hráolíu hefur lækkað um 1,8 prósent í dag og er tunnan nú verðlögð á 44,4 Bandaríkja­dali. Samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal er líkur taldar á því að verð á olíu geti jafnvel haldið áfram að lækka á næstunni, ekki síst vegna þess að banni við innflutningi á olíu frá Íran til Banda­ríkjanna verður brátt að öllu leyti afnumið. Líklegt þykir að það geti aukið enn á offramboð af olíu, sem síðan getur þrýst verði enn meira niður á við.

Vandi er þó um gang mála á þessum mörkuðum að spá, og óvissa um framtíðar­horfur viðvarandi. Flestar spár gera ráð fyrir að olía muni ekki hækka mikið á næstu tólf mánuðum og er það meðal annars rakið til mikils framboðs, og minnkandi eftir­spurnar miðað við það sem áður var talið í stórum hagkerfum, meðal annars í Kína. Grein­endur hjá Goldman Sachs bankanum spá því að verðið geti farið niður í allt að 20 Bandaríkja­dali, en til saman­burðar má nefna að fyrir rúmlega ári var verðið 110 Bandaríkja­dalir.

Lækkun olíu­verðsins á undan­förnu ári hefur komið illa við mörg ríki sem byggja efnahag sinn á olíu­viðskiptum, meðal annars Rússland, Noreg og Brasilíu.

Lækkunin kemur sér hins vegar vel fyrir neytendur hér á landi, sem borga minna fyrir olíuna, og þá hefur lækkunin haldið aftur af verðbólgu að mati Seðla­banka Íslands. Bensín­lítrinn hefur lækkað um tæplega 55 krónur á undan­förnum 15 mánuðum. Í júlí í fyrra kostaði lítrinn 251,5 krónur en um þessar mundir er verðið lægst í kringum 195 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár