Bensínverð hefur lækkað hratt - Íslenskir neytendur spara milljarða á ári

Verð á 95 okt­ana bens­íni á Íslandi hefur lækkað um 21,9 pró­sent frá því í júlí í fyrra. Þá kost­aði lítri af bens­íni 251,5 krónur en í dag er lægsta lítra­verðið 196,5 krónur. Hann hefur því lækkað um 55 krónur á 15 mán­uðum.

Allt árið í fyrra voru fluttir inn 178 millj­ónir lítrar af 95 okt­ana bens­íni. Miðað við lítra­verðið í júlí í fyrra hefði það magn kostað íslenska neyt­endur um 45 millj­arða króna. Ef miðað er við verð dags­ins í dag myndu þeir greiða 35 millj­arða króna fyrir sama magn af bens­íni. Munurinn er um tíu millj­arðar króna á árs­grund­velli. Auk þess sparar þessi lækkun þjóð­ar­bú­inu millj­arða króna í gjald­eyri. Þessi mikla lækkun á bens­ín­verði, og öllu öðru elds­neyti, er ráð­andi þáttur í því að inn­flutt verð­bólga hefur dreg­ist saman. Það hefur leitt til þess að verð­bólga hefur hald­ist lág í ár þrátt fyrir að inn­lend verð­bólga sé fjögur til fimm pró­sent.

Hugi Hreið­ars­son, mark­aðs­stjóri Atl­antsolíu, segir að áætl­aður gjald­eyr­is­sparn­aður vegna lægra elds­neyt­is­verðs í sept­em­ber einum saman sé um hálfur millj­arður króna. Það þýðir að um sex millj­arðar króna af gjald­eyri sparist á árs­grund­velli. Hann segir að Hol­lend­ingar greiði nú næsta bens­ín­verð í Evrópu, eða 224 krónur á lítra, og fast á hæla þeirra komi Norðmenn, sem greiði 222 krónur á lítra. Hol­lend­ingar borga því 27 krónum meira en Íslend­ingar fyrir hvern lítra af bens­íni.

Heimsmarkaðsverð lækkað um rúm 60 prósent

Ástæðan fyrir þess­ari miklu lækkun er ein­föld: heims­mark­aðs­verð á olíu hefur hríð­fallið frá miðju síð­asta ári. Í júní 2014 kost­aði tunna af Brent-olíu 115,9 dali. Hún kostar nú 45,46 dali og hefur því lækkað um 61 pró­sent á sextán mán­uðum. Verðið hefur ekki verið svona lágt síðan á árinu 2009.

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu 4. ágúst síð­ast­lið­inn að sam­hliða þessum lækk­unum á heims­mark­aði hefði útsölu­verð olíu­fé­lag­anna á Íslandi á 95 okt­ana bens­íni lækkað um 12,1 pró­sent. Ein ástæða þess að bens­ín­verðið hafði ekki lækkað meira var sú að álagn­ing íslensku olíu­fé­lag­ana hafði auk­ist á tíma­bil­inu. Félag íslenskra bif­reið­ar­eig­enda áætl­aði þá að sú hækkun á álagn­ingu sem átt hafði sér stað hefði aukið útgjöld neyt­enda um hálfan millj­arð króna á einu ári.

Bens­ín­verð hefur hins vegar lækkað hratt hér­lendis und­an­farna mán­uði. Í júlí 2015 var verð á lítra af 95 okt­ana bens­íni 225,6 krónur. Á þremur mán­uðum hefur verðið því lækkað um tæp þrettán pró­sent og er komið nokkuð undir 200 krónur á lítra.

Ríkið tekur um helming til sín

Það er eðli­legt að útsölu­verð á elds­neyti lækki ekki til jafns við lækkun á heims­mark­aðs­verði á olíu, þótt vissu­lega séu deildar mein­ingar um hversu mörgum krónum lækkun á heims­mark­aðs­verði ætti að skila í vasa neyt­enda hverju sinni. Íslenskir elds­neyt­is­salar þurfa til dæmis að gera ráð fyrir inn­kaupa­verði, sköttum álagn­ingu og flutn­ings­kostn­aði í útsölu­verði sínu. Og gengi íslensku krón­unnar skiptir líka máli, enda greitt fyrir elds­neyti með gjald­eyri. Íslenska krónan hefur lækkað tölu­vert gagn­vart Banda­ríkja­dal frá því í júní á síð­asta ári, eða um níu pró­sent,og það hefur nei­kvæð áhrif á lækkun á elds­neyt­is­verði til neyt­enda.

Önnur ástæða sem oft er nefnd er sú að olíu­fé­lögin eigi svo miklar upp­safn­aðar birgðir af elds­neyti sem keyptar hafi verið á hærra verði. Því taki tíma fyrir lækk­anir á heims­mark­aðs­verði að skila sér út í verð­lagið sem íslenskir neyt­endur verða að sætta sig við. Þegar langt lækk­un­ar­skeið á sér stað eiga þau rök þó aug­ljós­lega ekki við og ljóst að á ein­hverjum tíma­punkti verði lækkun á heims­mark­aðs­verði alltaf að skila í útsölu­verði.

Það er rétt að stór ástæða þess að verð á bensín og dísel er jafnt hátt og raun ber vitni hér­lendis er sú að ríkið tekur til sín um helm­ing elds­neyt­is­verðis til sín í formi ýmissa gjalda og skatta sem það leggur á. Þar er átt við sér­stakt bens­ín­gjald, almennt bens­ín­gjald, kolefn­is­gjald og auð­vitað virð­is­auka­skatt sem leggst á bensín eins og aðra vöru. Því fara um 100 krónur af hverjum lítra af bens­íni sem við kaupum til rík­is­ins og aug­ljóst að ríkið gæti stuðlað að lægra verði með því að draga úr álögum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár