Liðin tíð að Bandaríkin veiti Íslandi aðstoð „vegna góðvildar“

Íslendingar þurfa tromp á hendi til að vekja áhuga Banda­ríkjanna til að styðja landið diplómatísk í alþjóða­samfélaginu og veita viðskipta­legar eða efna­hags­legar ívilnanir, að því er fram kemur í þættinum Völundarhús utan­ríkismála Íslands.

Kína þarf að ógna Banda­ríkjunum frá Norðurslóðum til að Banda­ríkin sýni Íslandi verulega aukin áhuga. Samskipi Íslands og Banda­ríkjanna munu ráðast af samkeppni Banda­ríkjanna og Kína á heimsvísu og hafa ekkert með íslenska ráðamenn að gera. Þannig mun stefna Banda­ríkjanna gagnvart Íslandi byggist á samskiptum Banda­ríkjanna við Kína og Rússland. En bandarískir ráðamenn líta þannig á að minnsti ávinningur Kína af samskiptum við Ísland skaði hagsmuni þeirra.

Þetta kemur meðal annars fram í hlaðvarps­þættinum Völundarhús utan­ríkismála Íslands þar sem Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmála­fræði við Háskóla Íslands ræðir niður­stöður rannsókna sinna um utan­ríkismál við Albert Jónsson fyrr­verandi sendi­herra og Piu Hansson forstöðu­mann Alþjóðamála­stofnunar um samskipti Íslands og Banda­ríkjanna.

Enn fremur kemur fram að áhugi Banda­ríkjanna á Íslandi sé eigi að síður meiri en hann hafi verið lengi. Aukin áhersla Banda­ríkjanna á varnir Ísland byggist á því að þau vilja minna Kína og Rússland á að Ísland sé á áhrifa­svæði Banda­ríkjanna. Hernaðar­mikilvægi Íslands hafi hins vegar ekki aukist. Hernaðarleg umsvif Rússlands séu aðallega í heima­högum og ekki í hafinu í kringum Ísland. Umsvif Kína á Norðurslóðum séu auk þess lítil og hernaðar­lega umsvif þeirra á Norðurslóðum hverfandi.

Samkvæmt viðmælendum er Kína ólíklegt til að ógna Banda­ríkjunum frá Norðurslóðum næstu áratugina. Þeir segja að Ísland skipti áfram máli í tengslum við stuðning við sókn bandaríska flotans norður í höf ef til átaka kæmi. En Ísland sé langt frá því að gegna lykil­hlutverki í vörnum Banda­ríkjanna eins og það gerði á tímum kalda stríðsins.

Þá kemur fram í þættinum að bandarískir ráðamenn hafi eigi að síður áhyggjur af vaxandi samskiptum Íslands og Kína hvort sem það sé rétt eða ekki að samskiptin fari vaxandi. Banda­ríkin og Ísland hafi nákvæmlega sömu hagsmuni þegar kemur að varnar­málum komi upp dómínerandi stórveldi í Evrópu. Þá skipti Ísland öllu máli fyrir öryggi Banda­ríkjanna. Þetta sé þó ekki sviðsmynd sem líkleg sé að komi upp næstu áratugina.

Bandaríkin tekið þátt í því að hengja Ísland upp á snúru öðrum til varnaðar eftir hrunið

Aðildin að NATO og tvíhliða varnar­samingurinn við Banda­ríkin tryggja enn varnir Ísland en Evrópu­ríki koma í vaxandi mæli að því að tryggja öryggi Íslands þegar kemur að nýjum fjölþjóða ógnum eins og netárásum og upplýsinga­óreiðu sem og hryðjuverkaógn, að því er fram kemur hjá viðmælendum. Fjölþjóða ógnir séu lögreglumál og þá skipti nánari samvinna Íslands við Evrópu­ríki innan Schengen í lögreglu- og öryggis­málum miklu máli.

Í þættinum kemur fram að það sé liðin tíð að Banda­ríkin veiti Íslandi aðstoð vegna góðvildar. Banda­ríkin hafi tekið þátt í því að hengja Ísland upp á snúru öðrum til varnaðar eftir hrunið. Einnig kemur fram að Íslendingar þurfi tromp á hendi til að vekja áhuga Banda­ríkjanna til að styðja landið diplómatísk í alþjóða­samfélaginu og veita viðskiptalegar eða efnahagslegar ívilnanir. Íslenskir ráðamenn gætu þó leitað til Kína og þá gætu Banda­ríkin haft frumkvæði að því að koma aftur hingað og veita Íslandi efnahagslegt skjól.

Staðan sé hins vegar þannig að Ísland er ekki eins háð Banda­ríkjum og áður. Þess vegna þurfi ekki að vera sama áherslan í utan­ríkisstefnu Íslands á samskiptin við Banda­ríkin.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spil­aranum hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár