„Eftir vopnahléið eru þúsund manns enn í varðhaldi á grundvelli laganna“

Um 9.300 Palestínu­menn eru í haldi Ísraels í dag. Ríflega 1.200 þeirra eru þar á grund­velli laga um ólöglega baráttu­menn og eru flestir frá Gaza. „Þegar stríði lýkur á að sleppa þér,“ segir Nadine Abu Arafeh mann­réttinda­lögfræðingur um lögin. Hún telur stöðu fanga lítið hafa breyst eftir vopnahlé.

Nadine Abu Arafeh
Nadine Abu Arafeh Segir að enn sé fjöldi Palest­ínu­manna frá Gaza í haldi sem hefði átt að sleppa þegar vopna­hlé náð­ist. Mynd: Aðsent

„Vopna­hléið er þegar allt kemur til alls bara fyrirsögn í dagblaði,“ segir Nadine Abu Arafeh mann­réttinda­lögfræðingur frá Palestínu. Hún starfar í Jerúsalem sem lögfræðingur Palestínu­manna í haldi í Ísrael. Heimildin ræddi við Nadine um stöðu fangaðra Palestínu­manna í kjölfar vopnahlés en samningur Ísrael og Hamas kvað á um að sleppa ætti 1.700 Palestínu­mönnum úr haldi og öllum gíslum Hamas.

„Vopnahlé mun ekki breyta ástandinu því þetta er ekki spurning um nokkur brot sem hægt er að laga. Þetta er spurning um hvernig kerfið er byggt upp hvort sem það er á Gaza, í fangelsum, á Vestur­bakkanum eða öðrum svæðum sem nú kallast Ísrael,“ útskýrir Nadine sem segir kerfis­breytingar þarfar til þess að bæta stöðu Palestínu­manna.

Nú í janúar sæta tæplega 9.300 Palestínu­menn varðhaldi í ísraelskum fangelsum. Þeirra á meðal eru 3.385 í varðhaldi vegna „leynilegra sönnunar­gagna og án réttar­halda“ og 1.237 eru titlaðir sem „ólöglegir baráttu­menn“ sem heitir …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár