Launahækkanir í kjölfar verðbólgu „eins og að pissa í skóinn sinn“

Hagfræði­prófessor segir að hætta sé á að ekki verði ráðist í aðgerðir sem bæta lífsgæði hér á landi til lengri tíma ef tímanum er varið í karp um skammtíma­hagsmuni og ef væntingar um launa­hækkanir eru óraunhæfar.

Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands.
Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands. Mynd: Skjáskot/RÚV

Lífsgæði á Íslandi myndu frekar batna með umbótum á húsnæðis­markaði, í mennta­kerfinu og vinnu­álagi í stað krafna um frekari launa­hækkanir, sem hafa verið miklar á síðustu tveimur árum. Þetta skrifar Gylfi Zoega, hagfræði­prófessor við Háskóla Íslands og ytri meðlimur í peninga­stefnu­nefnd Seðla­bankans, í síðasta tölublaði Vísbendingar.

Miklar launahækkanir og óskynsamlegur hagvaxtarauki

Gylfi fer einnig yfir meðaltal launa­hækkana félags­manna ASÍ, BSRB, BHM og Kennara­sambands Íslands frá því að síðustu kjara­samningar voru undir­ritaðir í mars 2019. Þar hafa laun félags­manna ASÍ hækkað mest, eða um tæp 30 prósent. Hækkanirnar hjá hinum félögunum á sama tímabili voru svo á milli 16 og 27 prósent.

Búist er við því að svokallaður hagvaxtar­auki, sem felur í sér hærri laun ef hagvöxtur er mikill og er innbyggður í kjara­samningunum, muni leiða til enn meiri launa­hækkana á næsta ári. Að mati Gylfa getur þetta ákvæði varla talist skynsamlegt, þar sem hagvöxturinn í ár og á næsta ári sé bein afleiðing af samdrættinum af völdum farsóttarinnar í fyrra. Því leiði farsóttin beint til launa­hækkana óháð afkomu fyrir­tækja og fram­leiðni vinnuafls.

„Skólabókardæmi“ um hvernig verðbólga getur magnast

Ofan á þetta rifjar Gylfi einnig upp ummæli forystu­manna launþega um að vaxandi verðbólga undan­farinna mánaða muni leiða til þess að krafist verði þess að laun þeirra hækki enn frekar svo að kaup­mátturinn haldist. Samkvæmt honum eru þessi ummæli skólabókar­dæmi um hvernig verðbólga getur magnast og orðið viðvarandi, eins og gerðist á áttunda og níunda áratug síðustu aldar.

Slíkar kröfur eru hins vegar ekki til þess fallnar að bæta lífskjör á Íslandi, samkvæmt Gylfa. „Ef fram­leiðsla verður dýrari í heiminum þá er það staðreynd sem ekki verður umflúin að lífskjör versna. Það er sömuleiðis eins og að pissa í skóinn sinn að hækka laun vegna þess að innlent verðlag hafi hækkað sem síðan leiðir til frekari launa- og verð­hækkana,“ bætir hann við.

Betra að bæta lífskjör með öðrum leiðum

Gylfi segir að lífsgæði hér á landi séu góð, og bendir hann á há meðallaun, mikinn jöfnuð og litla fátækt því til stuðnings. Hins vegar segir hann að þau mætti bæta með öðrum leiðum en launa­hækkunum.

Hann bendir á stöðu Íslands í lífsgæða­vísitölu OECD, en samkvæmt henni er húsnæðis­markaði, menntun, og samrýmingu vinnu og frístunda ábótavant hér á landi. Miklar hækkanir á húsnæðis­verði hafi gert lágtekju­fólki erfiðara um vik að eignast eigið húsnæði, auk þess sem það hafi valdið eigna­tilfærslu frá ungu fólki til eldri kynslóða.

Sömuleiðis hafi frammistaða grunn­skólabarna á PISA-prófum ekki verið góð, sérstak­lega ekki hjá drengjum. Hlutfall háskóla­menntaðra sé einnig lágt í saman­burði við önnur OECD-ríki.Þar að auki sé vinnu­tíminn langur hérlendis, í saman­burði við hin Norður­löndin. Gylfi segir Íslendinga virðast eiga erfitt með að samræma vinnu, einkalíf og barna­uppeldi.

„Hættan er sú á komandi ári að ekki verði tekið á þessum sem öðrum þjóðþrifa­málum en tímanum varið í karp þar sem skammtíma­hagsmunir ráða för og væntingar um frekari launa­hækkanir eru óraunhæfar,“ bætir Gylfi við í greininni sinni.

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár