Spá því að fjöldi ferðamanna verði 720 þúsund í ár – Svipaður fjöldi og kom árið 2012

Samkvæmt spá Seðla­bankans verður framlag utan­ríkis­viðskipta til hagvaxtar jákvætt í fyrsta sinn síðan árið 2019 á næsta ári. Þar telur að bankinn reiknar með rúmlega tvöföldun ferða­manna en mestu skipta auknar loðnu­veiðar.

Þegar mest var komu 2,3 milljónir ferðamanna til Íslands á einu ári. Nú er reiknað með að fjöldi þeirra í ár verði rúmur fimmtungur af þeim fjölda.
Þegar mest var komu 2,3 millj­ónir ferða­manna til Íslands á einu ári. Nú er reiknað með að fjöldi þeirra í ár verði rúmur fimmt­ungur af þeim fjölda. Mynd: Úr safni

Seðla­banki Íslands spáir því að fjöldi ferða­manna sem heimsæki Ísland í ár verði um 720 þúsund alls. Það eru um 40 þúsund fleiri ferðamenn en bankinn spáði að myndu koma hingað til lands í spá sinni sem birtist í lok ágúst.

Þetta kemur fram í ritinu Peninga­málum sem kom út 17. nóvember síðastliðinn.

Þar segir að útlit sé fyrir áfram­haldandi bata í ferða­þjónustu þrátt fyrir hraða fjölgun smita í sumar vegna Delta-afbrigðisins og stöðu Íslands á rauðum lista hjá sóttvarnar­stofnunum Evrópu og Banda­ríkjanna. „Aðrar vísbendingar gefa einnig til kynna að batinn verði hraðari en áður var talið. Þannig hefur leitum að hótelum og flugi til Íslands á leitarvél Google t.d. fjölgað frá því í sumar og nálgast sambærilegan fjölda og fyrir faraldurinn. Þá eru horfur á að alþjóðlegt farþega­flug sæki í sig veðrið á næstu misserum í kjölfar þess að bólu­settum ferða­mönnum er orðið heimilt að ferðast til Banda­ríkjanna í fyrsta sinn síðan í mars í fyrra.“

Bankinn spáir því enn fremur að fjöldi ferða­manna muni rúmlega tvöfaldast á næsta ári og verði þá 1,5 milljónir. „Óvissa er þó enn til staðar um horfur í ferða­þjónustu um allan heim og gæti bakslag í viðureigninni við farsóttina sett þessar áætlanir í uppnám. Þá gæti hækkun olíuverðs leitt til hærri flug­fargjalda næstu misseri sem dregið gætu úr ferða­vilja almennings.“

20 prósent færri en í forsendum fjárlaga

Í forsendum fjárlaga fyrir árið 2021 var gengið út frá því að ferðamenn sem myndu koma til Íslands á því ári yrðu 900 þúsund talsins. Gangi spá Seðla­banka Íslands eftir verða þeir 20 prósent færri en fjármála- og efnahags­ráðuneytið reiknað með og aðeins fleiri en heimsóttu Ísland árið 2012.

Þegar mest var, á árinu 2018, komu yfir 2,3 milljónir ferða­manna til Íslands. Þeim fækkaði niður í um tvær milljónir árið 2019 eftir að gjaldþrot WOW air setti strik í reikninginn.

Í fyrra varð svo algjört hrun í geiranum vegna kórónu­veiru­faraldursins sem kom um tíma í veg fyrir nær allar flug­samgöngur með farþega. Alls var fjöldi ferða­manna það árið 486 þúsund, eða um 24 prósent af því sem hann var árið 2019.

Þótt langt sé í land þangað til að þeim hæðum í fjölda ferða­manna sem hingað komu á árunum 2018 og 2019 þá mun þeim fjölga, samkvæmt spá Seðla­banka Íslands, um 48 prósent milli ára.

Loðnuveiði um helmingur endurskoðunar

Hinn skarpi samdráttur í ferða­þjónustu hefur leitt til þess að útflutnings­tekjur þjóðar­búsins hafa skroppið mikið saman. Þrátt fyrir öran vöxt milli ára nam útflutt þjónusta einungis 23 prósent af útfluttri þjónustu á sama ársfjórðungi 2019 og fjöldi ferða­manna var aðeins 14 prósent af fjöldanum fyrir tveimur árum.

Þessi staða vigtar inn í að hagvöxtur í ár verður, samkvæmt spá Seðla­bankans, 3,9 prósent í ár. Bankinn telur þó að hagvöxtur aukist enn frekar á næsta ár og að þar vegi þyngst kröftugur vöxtur útflutnings vegna aukinna tekna af ferða­þjónustu og hagstæðari loðnu vertíðar. Samkvæmt spá bankans verður framlag utan­ríkis­viðskipta til hagvaxtar jákvætt í fyrsta sinn síðan árið 2019 eða um 2,7 prósentu­stig og að hagvöxtur á næsta ári verði 5,1 prósent, sem er 1,2 prósentu­stigum meira en Seðla­bankinn spáði í ágúst. Um helmingur endur­skoðunarinnar má rekja til væntinga um aukna loðnu­veiði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár