Leynilegur hópur elur á ótta við múslima á Íslandi

Nýstofnuð sam­tök, Vakur, hafa boðað fyr­ir­les­ar­ann Robert Spencer til lands­ins, sem er þekktur fyrir að dreifa hat­ursá­róðri og fals­fréttum um múslima. Einn með­lima hóps­ins, Valdimar H. Jóhann­es­son, gaf útskrift­ar­nemum bók­ina Þjóð­ar­plágan íslam.

Valdimar H. Jóhannesson
Valdimar H. Jóhann­es­son Blaða­mað­ur­inn fyrr­ver­andi.

Leyni­legur hópur hefur stofnað sam­tök til að berj­ast fyrir evr­ópskri menn­ingu á Íslandi með því að ala á ótta við múslima. 

Meðlimir hóps­ins eru ekki gefnir upp, en þegar kannað er hver stendur að baki vef­síðu hóps­ins sést að Þröstur Jónsson er rétt­hafi léns­ins. Hann er raf­magns­verk­fræð­ingur á Egils­stöðum. Þegar haft er sam­band við hann þver­neitar hann fyrir nokk­urs konar for­dóma. „Við höfum ekk­ert á móti múslimum, síður en svo. Við vor­kennum múslimum og höfum miklar áhyggjur af þeim,“ segir hann.

Með frek­ari svör bendir Þröstur á fyrr­ver­andi blaða­mann­inn Valdimar H. Jóhann­es­son, sem gaf út bók­ina Þjóð­ar­plágan íslam í fyrra undir nafni útgáfu­fé­lags­ins Tján­ing­ar­frels­is­ins og sendi útskrift­ar­nemum úr háskólum lands­ins bók­ina sem gjöf. 

Í sam­tali við Stundina full­yrðir Valdimar að hann sé ekki mót­fall­inn fólki frá löndum þar sem íslam er ríkj­andi trú­ar­brögð, heldur sé hann á móti hug­mynda­fræði fólks­ins. 

Flytja andstæðing íslam til Íslands

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár