Ævilengd fólks með grunnskólamenntun hefur styst síðustu ár

Grunnskóla­menntaður karl getur átt von á að lifa 8 árum skemur en háskóla­menntuð kona.

Fólk á gangi
Fólk á gangi Konur geta almnent vænst þess að lifa 3,2 árum lengur en karl­menn á Íslandi. Mynd: Golli

Ævilengd íslenskra karlmanna með grunn­skóla­menntun hefur styst um hálft ár síðasta áratug, á meðan konur með háskóla­menntun lifa ári lengur en þá.

Nýjar tölur Hagstofunnar sýna að karlmenn með grunn­skóla­menntun geta frá 30 ára aldri vænst þess að lifa 8 árum skemur en háskóla­menntaðar konur.

Bæði konur og karlar með háskóla­menntun skera sig úr mann­fjöldanum að því leyti að frá árinu 2011 hefur vænt ævilengd þeirra ekki lengst. Á meðan háskóla­menntað fólk af karl- og kvenkyni getur vænst þess að lifa um einu og hálfu ári lengur árið 2025 en 2011, eiga grunnskóla­menntaðar konur von á að lifa hálfu áru skemur. 

Í færslu Hagstofu Íslands kemur fram að meðal­ævilengd karla á Íslandi var 81,0 ár árið 2025 og meðal­ævilengd kvenna 84,2 ár en meðal­ævilengd sýnir hve mörg ár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu ef miðað er við aldurs­bundna dánar­tíðni mann­fjöldans.

Ævilengdar­munur kynjanna hefur minnkað síðustu áratugi. Frá árinu 1990 hafa karlar bætt við sig rúmlega fimm árum og konur tæplega fjórum í meðal­ævilengd. Ævilengd karla jókst um 0,1 ár frá árinu 2024 á meðan hún minnkaði hjá konum um 0,1 á milli áranna 2024 og 2025.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ég veit ekki hvort það verður endilega eftirsóknarvert að verða gamall eins og heimurinn er að þróast?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár