SE segir ekkert að sölu RÚV á auglýsingum á HM

Sam­keppn­is­eft­ir­litið gerir engar athuga­semdir á aug­lýs­inga­sölu RÚV í tengslum við yfir­stand­andi HM.

Síminn hf. sakaði RÚV um að setja víkja frá lögbundinni gjaldskrá í tengslum við sýningar HM.
Síminn hf. sak­aði RÚV um að setja víkja frá lög­bund­inni gjald­skrá í tengslum við sýn­ingar HM. Mynd: Anton Brink

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir ekk­ert athuga­vert við hátt­semi RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði vegna HM í fót­bolta. Þetta kemur fram í frummati eft­ir­lits­ins á vef sínum í dag.

Frummatið er gefið í kjöl­far kvört­unar Símans hf. auk ábend­inga ann­arra fjöl­miðla vegna hátt­semi Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði í tengslum við Heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu. Í kvörtun­inni er vikið að meintum lág­marks­kaups­skil­yrðum RÚV á til­teknum aug­lýs­inga­plássum í tengslum við sýn­ingar HM og að vikið sé frá lög­bund­inni gjald­skrá við sölu af þeim.

Eft­ir­litið telur sig ekki hafa full­nægj­andi laga­heim­ild til rann­sóknar á mál­inu, en sam­kvæmt svari RÚV til hefur eng­inn áskiln­aður verið gerður um lág­marks­kaup og ekki verið á nokkurn hátt lagt að aug­lýsendum að ráð­stafa fé sínu í öllu eða ein­hverju leyti til RÚV. Einnig mið­að­ist gild­is­tími allra eft­ir­far­andi samn­inga ein­ungis við HM og lýkur því með mót­inu. Engin fríð­indi fylgja kaup­endum aug­lýs­inga­pláss­ins né bind­ing, hvorki í formi einka­kaupa né tryggð­ar­af­slátta.

Í ljósi svars Rík­is­út­varps­ins telur Sam­keppn­is­eft­ir­litið ekki vera nægar vís­bend­ingar um að RÚV hafi með hátt­semi sinni gengið gegn sam­keppn­is­lögum, þótt fyr­ir­tækið yrði talið vera mark­aðs­ráð­andi á aug­lýs­inga­mark­aði. Því sé ekki til­efni til frek­ari athug­unar á grund­velli heim­ildar eft­ir­lits­ins til íhlut­unar gegn athöfnum opin­berra aðila.

Vísar eft­ir­litið m.a. til þess að fjöl­miðla­nefnd hefur eft­ir­lit með því að RÚV fari að fjöl­miðla­lögum, en nefndin hefur þetta mál nú til skoð­unar.

Þrátt fyrir engar athuga­semdir við þetta athæfi tekur Sam­keppn­is­eft­ir­litið þó fram að það hafi ítrekað fjallað um stöðu RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði og lagt til að hún verði end­ur­skoðuð. Eðlilegt sé að ráðu­neyti og stjórn­völd sem fara með mál­efni RÚV taki stöðu mið­ils­ins til skoð­unar sem og þær reglur sem settar hafa verið fram til að bæta úr henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár