„Það eru ákveðin verðmæti í hræinu á WOW air“

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, hefur áhyggjur af því að minnk­andi sam­keppni í flug­rekstri, í kjöl­far gjald­þrots WOW air, muni hafa nei­kvæð sam­keppn­is­leg áhrif á neyt­endur.

„Það eru ákveðin verð­mæti í hræ­inu á WOW air sem hægt er að nýta til þess að koma á sam­keppni aftur. Við leggjum gríð­ar­lega áherslu á það að skipta­stjórar og aðrir sem að þessu koma hugi mjög vel að þessu.“

Þetta sagði Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

WOW air fór á haus­inn í síð­asta mán­uði. Í kjöl­far þess birti Sam­keppn­is­eft­ir­litið frétt á vef sínum þar sem það beindi því til við­kom­andi stjórn­valda og þeirra aðila sem halda á ýmsum eignum WOW air í fram­haldi af gjald­þroti að huga að sam­keppn­is­legum áhrifum þeirra ákvarð­ana sem teknar verða um úrlausn máls­ins.

Í frétt­inni stendur enn fremur: „Að þeir sem koma að úrlausn máls­ins geri það sem í þeirra valdi stendur til þess að tryggja að eignir hverfi ekki af mark­aðnum, en þess í stað sé gripið til mögu­legra ráð­staf­ana sem stuðla að því að sam­keppni á íslenskum flug­mark­aði sé við­haldið, eftir því sem fram­ast er unnt. Að flug­mála­yf­ir­völd, þ.m.t. sam­ræm­ing­ar­stjórar á flug­völlum, liðki fyrir því eftir því sem fram­ast er kostur að eignir flug­fé­laga, óefn­is­legar sem og efn­is­legar, sem hætta starf­semi geti nýst nýjum aðilum í rekstri. Er þetta ekki síst mik­il­vægt á Íslandi sem eðli máls sam­kvæmt er land­fræði­lega afmark­aður mark­aður og hag­kerfið byggir að tölu­verðu leyti á ferða­manna­iðn­aði. Að skipta­stjórar geri allt sem í þeirra valdi stendur til þess að tryggja það að eignir hverfi ekki af mark­aðnum og þar með að sam­keppni á íslenskum flug­mark­aði sé við­haldið eftir því sem fram­ast er unnt.“

Páll Gunnar segir að í frétt­inni end­ur­speglist áhyggjur eft­ir­lits­ins af því hvað verði um sam­keppni í flugi til og frá land­inu. „Þetta er svo gríð­ar­lega mik­il­vægt á eyju í miðju hafi þar sem gáttin til og frá land­inu er í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl. Öll sam­keppni sem við­kemur honum er gríð­ar­lega mik­il­væg.“

Páll minnir á hversu mikil áhrif það hafi haft á sam­keppni þegar Iceland Express kom inn á mark­að­inn á sínum tíma og síðan aftur þegar WOW air fór að keppa í Banda­ríkja­flugi við Icelandair. „Þessi gróska sem fylgdi því sog­aði að sér önnur flug­fé­lög frá útlöndum.“

Ekki sé hægt að treysta á að erlend flug­fé­lög, sem fljúgi fyrst og fremst til Íslands en ekki að uppi­stöðu frá Íslandi, fylli það skarð fyrir íslenska neyt­endur sem WOW air skilji eftir sig. Þau hafi ekki sömu íslensku hags­muni í huga og fyr­ir­tæki sem byggi upp leiða­kerfi sitt frá Íslandi, líkt og WOW air gerði. „Þau eru fljót að koma en líka fljót að fara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár