Kalla eftir „hvalrekaskatti“ á orkufyrirtæki

Tveir breskir stjórn­málaflokkar kalla nú eftir sérstökum eingreiðslu­skatti á orku­fyrirtæki þar í landi sem hafa hagnast mikið á skörpum hækkunum á orkuverði. Skattinn mætti nota til að fjármagna stuðnings­aðgerðir fyrir tekjulág heimili.

Rachel Reeves, þingmaður breska Verkamannaflokksins og skuggaráðherra fjármála.
Rachel Reeves, þing­maður breska Verka­manna­flokks­ins og skugga­ráð­herra fjár­mála. Mynd: EPA

Ríkis­stjórn Bretlands ætti að leggja svokallaðan „hvalreka­skatt“ á bresk olíu­fyrirtæki, sem skiluðu methagnaði í fyrra sökum skarpra orkuverðs­hækkana í landinu. Þetta segja talsmenn breska Verkamanna­flokksins og Frjáls­lyndra demókrata, en samkvæmt þeim væri hægt að fjármagna stuðnings­aðgerðir fyrir heimili sem hafa orðið illa úti vegna þessara verð­hækkana með slíkri skatt­lagningu.

Methagnaður hjá olíufyrirtækjum

Samkvæmt frétt BBC skilaði breska orku­fyrirtækið BP 12,8 milljarða punda hagnaði í fyrra samkvæmt nýrri tilkynningu, en það er mesti hagnaður fyrir­tækisins í átta ár. Hagnaðurinn var einnig í hæstu hæðum hjá Shell, sem skilaði nýlega besta ársfjórðungs­uppgjöri sínu frá árinu 2013.

Hagnaðurinn er tilkominn vegna skarpra verð­hækkana á olíu og jarðgasi á heimsvísu, en sú verð­hækkun hefur einnig leitt til mikilla útgjalda­aukningar á útgjöldum heimila landsins. Samkvæmt viðmælendum Guardian er búist við að heimilin muni þurfa að greiða rúmlega helmingi meira vegna orkunnar sinnar í apríl en þau gera núna, eða tæplega tvö þúsund pund á mánuði. Það jafn­gildir 337 þúsund íslenskum krónum.

Skattur vegna hvalreka

Verkamanna­flokkurinn lagði til í byrjun árs að virðis­auka­skatturinn á orku­kostnaði heimila yrði afnuminn, en slíkt myndi lækka hann um 200 pund á mánuði. Samkvæmt flokknum gætu olíu­fyrirtæki landsins fjár­magnað hluta af þessari aðgerð, þar sem hægt yrði að skatt­leggja hluta af þeim hagnaði sem þau hafa orðið fyrir vegna þessara skarpra verð­hækkana.

Í kjölfar þess að hagnaðar­tölur BP og Shell voru birtar hefur þess háttar skattur, sem er kallaður hvalreka­skattur (e. windfall tax), svo fengið aukinn hljóðbyr á meðal stjórnar­andstöðunnar í Bretlandi. Rachel Reeves, skugga­ráðherra fjármála í landinu, kallaði eftir henni í Twitter færslu sem sjá má hér að neðan, en þar sagði hún einnig að áform ríkis­stjórnarinnar til að bregðast við hærri orku­kostnaði hafi skilið heimilin eftir með meiri áhyggjur en áður.

Guardian greinir einnig frá því að formaður Frjáls­lynda demókrata­flokksins, Ed Davey, sagði að það væri einfald­lega ósnnagjarnt að orku­fyrirtækin högnuðust svona mikikið á ástandinu á meðan fólk veigraði sér við að kveikja á ofnunum heima hjá sér.

Fjármála­ráðherra Bretlands, Rishi Sunak, hefur hingað til ekki viljað koma á slíkri skatt­lagningu, en í síðustu viku sagði hann olíu­fyrirtækin nú þegar greiða mikið í opinber gjöld. Samkvæmt honum myndi meiri skatt­lagning leiða til þess að fyrir­tækin ættu ekki nægan pening til að gera starfsemi sína vistvænni.

Forstjóri BP, Bernard Looney, svaraði á svipuðum nótum í vikunni, en hann sagði við Financial Times að hvalreka­skattur á olíu­fyrirtæki væri ekki líklegur til að leysa orku­krísuna, þar sem hún myndi koma í veg fyrir fjár­festingar í grænni orku­framleiðslu.

Ekki ný tegund skattlagningar

Samkvæmt umfjöllun BBC hefur breska ríkis­stjórnin áður lagt hvalreka­skatt á fyrirtæki. Frægasta dæmið um það er frá árinu 1997, þegar ríkis­stjórn Tony Blair skatt­lagði fyrirtæki sem höfðu verið einkavædd, á grund­velli þess að þau hefðu verið seld á undir­verði.

Þar var um að ræða orku­fyrirtæki, veitu­fyrirtæki, fjarskipta­fyrirtæki og rekstrar­aðila flugvalla. Íhalds­flokkurinn lagði sambærilegan skatt á banka árið 1981 á grund­velli þess að þeir hefðu hagnast óhóflega á háum stýri­vöxtum, Sama ríkis­stjórn setti síðar sérstakan skatt á þarlend olíu­fyrirtæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár