Flugeldurinn til Bankasýslustjóra var vinagjöf en vínið fyrir alla

Starfs­menn Banka­sýslunnar fóru tvívegis út að borða í boði fyrir­tækja sem höfðu fjárhags­legan hag af sölu stofn­un­ar­innar á hlutum ríkisins í Íslands­banka. Til viðbótar fengu starfs­menn gefins vínflöskur og smárétti en flugeldur sem stofnuninni barst á gamlársdag er sögð hafa verið vinagjöf til forstjórans.

Undir lok dags
Undir lok dags Jón Gunnar, for­stjóri Banka­sýsl­unnar, fékk flug­eld­inn send­ann á skrif­stof­una á milli klukkan 16 og 17 á gaml­árs­dag. Hann tók hann með sér, enda var um gjöf frá vini hans að ræða.

Starfs­fólk Banka­sýslu ríkisins fóru tvívegis út að borða í boði fyrir­tækja sem komu að útboði á hlutum ríkisins í Íslands­banka. Í minnis­blaði sem Banka­sýslan hefur skilað fjár­laganefnd og birt á vefnum sínum vegna þessa kemur fram að kvöldverðar­boðin hafi verið til að fagna frum­útboði á hlutum í Íslands­banka, sem lauk í júní árið 2021. Sömu aðilar sáu um lokað útboð á 22,5 prósenta hlut ríkisins í bankanum í mars síðastliðnum. 

Fyrst var farið með fyrirtækja­ráðgjöf og verðbréfa­miðlun Íslands­banka út að borða 24. september árið 2021 þar sem máltíðin kostaði 34 þúsund krónur per einstakling. Rúmum tveimur mánuðum síðar, 30. nóvember, fóru starfs­mennirnir aftur út að borða með einstaklingum sem allir höfðu fjárhags­legan hag af sölunni; það er fulltrúum þriggja umsjónar­aðila, tveggja fjármála­ráðgjafa og þriggja lögfræðilegra ráðgjafa. Kostnaðurinn, 48 þúsund krónur á hvern einstakling, var greiddur af umsjón­aðilum útboðsins; Citibank, Íslands­banka og JP Morgan. 

Stundin hefur síðustu mánuði óskað upplýsinga frá Banka­sýslunni um gjafir í tengslum við útboð bankans, síðast fyrir ellefu dögum, þann 29. september síðastliðinn. Þeim fyrir­spurnum hefur ekki verið svarað eða vísað til þess að minnis­blað væri í vinnslu um málið fyrir fjár­laganefnd. Nefndið hafði óskað eftir minnis­blaði í kjölfar þess að forstjóri og stjórnar­formaður Banka­sýslunnar fóru á opinn fund nefndarinnar þar sem forstjórinn var spurður út í gjafir og málsverði. 

„Við fengum einhverjar vínflöskur og flugeld, konfekt­kassa, en svo eigum við náttúru­lega hádegis­verði og kvöld­verði með ráðgjöfum og svo framvegis, en það er ekkert annað,“ sagði Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Banka­sýslu ríkisins, á fundinum. 

„Frá vini for­stjóra, sem starfar hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki Flug­eldur. Kostn­aður var um 2.500 kr. Þetta hefur verið stað­fest sem vina­gjöf af við­kom­andi ein­stak­lingi.“
úr minn­is­blaði Banka­sýslu rík­is­ins til fjár­laga­nefndar Alþingis

Til viðbótar við áður­nefnda kvöld­verði kemur fram í minnis­blaði Banka­sýslunnar til fjár­laganefndar að starfs­fólk hafi fengið vín, konfekt og kokteila­sett að gjöf. Áður hefur komið fram að einn flugeldur hafi borist á skrif­stofu stofnunarinnar. „Ég fékk flug­eldinn hingað á skrif­stofuna í Banka­sýsluna (á milli kl. 16 og 17) á gamlársdag, þar sem ég var að vinna. Þetta var miðlungs raketta,“ sagði banka­sýslustjóri í skriflegu svari til Stundarinnar um það í maí. 

Í minnis­blaðinu nú segir að þetta hafi hinsvegar verið gjöf frá vini Jóns Gunnars og ætluð honum. „Frá vini forstjóra, sem starfar hjá fjármála­fyrirtæki Flugeldur. Kostnaður var um 2.500 kr. Þetta hefur verið staðfest sem vinagjöf af viðkomandi einstaklingi,“ segir í minnis­blaðinu.

Aðrar gjafir sem taldar eru upp í minnis­blaðinu eru:

  • Frá ACRO verð­bréfum: Vínflaska. Kostnaður var um 4.000 kr.
  • Frá Íslenskum verð­bréfum: Tvær vínflöskur. Samtals kostnaður var um 8.000 kr.
  • Frá Lands­bankanum: Konfekt­kassi. Kostnaður var 4.067 kr.
  • Frá lögmanns­stofunni BBA/Fjeldco: Kokteila­sett. Kostnaður við hverja jólagjöf var um 20 þúsund kr.
  • Frá verðbréf­miðlun og fyrirtækja­ráðgjöf Íslands­banka: Stöðluð jólagjöf bankans til stærri viðskipta­vina þessara deilda. Ein léttvíns­flaska og smáréttir. Kostnaður við hverja jólagjöf var um 14 þúsund kr.
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thorsteinn Thorvardarson skrifaði
    Viðbjóður, en flokkurinn bara styrkist og Kata litla brosir út ú eitt.
    1
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Þau eru ekki af baki dottin í spillinguni.
    2
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Auðvitað eru þetta mútur ?
    Allt í boði sjálfstæðisflokksins .
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár