Listin og lífið renna saman

Heiðurs­listamaður Sequences þetta árið er Kristinn Guðbrandur Harðarson sem hefur átt langan feril. Hann segist aldrei hafa séð eftir því að feta veg mynd­listarinnar, enda hafi hann aldrei átt val. Samhliða Sequences gefur hann út bókverk, þar sem texti og myndir eiga í samtali á síðunum.

Vinnur heima
Vinnur heima Kristinn vinnur verk sín í sól­stofu heima hjá sér sem rennur saman við stof­una. Hann seg­ist þó ekki bund­inn við einn stað, heldur geta stungið sér niður hvar sem er til að vinna verk sín. Verra sé að finna öllum verk­unum pláss, enda sé magnið „hrylli­legt“ eftir langan feril. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég gæti alveg eins reynt að svara því hvert sé gildi lífs míns. Þetta rennur saman, einhvern veginn, listin og lífið,“ segir Kristinn Guðbrandur Harðarson, heiðurs­listamaður Sequences í ár, þegar hann fær þá spurningu hvert gildi listarinnar er í hans lífi. „Að vera lista­maður er ekki venjuleg vinna, þú veist aldrei almennilega hvenær þú ert að vinna og hvenær þú ert í fríi. Listin gefur mér mikið og ég hef aldrei séð eftir því að feta þessa braut. Ég held reyndar að það sé eins með mig eins og svo marga aðra sem ég þekki – ég hafði aldrei neitt val, það var eins og listin væri valin fyrir mig. Þetta er bara í mönnum. Þettta hljómar kannski tilgerðar­lega en ég sé þetta líka í nemendum sem eru að byrja í mynd­listinni. Það eru ákveðnir nemendur sem eru bara eins og þeim sé stungið í samband. Það er bara eitthvað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár