Unglingurinn óttaðist að lenda í fangelsi vegna falsaðra skilríkja

Ali og Majed ferðuðust á yfir­fullum bátum yfir Miðjarðar­hafið. Stríðs­ástand og engin framtíð í Írak, segja hælis­leitendurnir sem dregnir voru út úr Laugar­neskirkju með valdi síðustu nótt.

Útlendinga­stofnun staðhæfir að hvorugur hælis­leitendanna sem dreginn var út úr Laugar­neskirkju með valdi síðustu nótt sé undir lögaldri. Ali Nasir og Majed, hælis­leitendur frá Írak sem dvalið hafa á Íslandi í um sjö mánuði, greindu Stundinni frá því að þeir væru 16 ára og 30 ára gamlir. 

Ali og túlkurinn hans sögðu jafnframt að þegar Ali flúði frá Írak hefði hann orðið sér úti um falsað vegabréf og samkvæmt því væri hann 19 ára gamall. Á leiðinni til Íslands hefði hann heyrt að Íslendingar hefðu um árabil dæmt flótta­fólk í fangelsi fyrir að framvísa fölsuðum skilríkjum. Auk þess væri hérlendis oftast dregið í efa að hælis­leitendur væru undir lögaldri. 

Þegar Ali kom til Íslands og sótti um hæli fram­vísaði hann því falsaða vega­bréfinu en þorði ekki að segja íslenskum yfir­völdum að pappírarnir væru falsaðir. Fyrir vikið notfærði Ali sér ekki ungan aldur þegar yfirvöld tóku mál hans til skoðunar, en slíkt hefði getað orðið máli hans til fram­dráttar.

Útlendingastofnun rýfur trúnað

Morgun­blaðið sló því upp í netfrétt um tvöleytið í dag að Ali Nasir væri „ekki sex­tán ára, líkt og haldið hef­ur verið fram í frétt­um Stund­ar­inn­ar og Rík­is­út­varps­ins í dag, held­ur yfir lögaldri“. Þetta staðfesti starfs­maður Útlendinga­stofnunar í samtali við Mbl.

Í fréttinni er jafnframt vísað í málsgögn Alis. „Í gögn­um máls­ins er af­rit af vega­bréfi sem staðfest­ir að hann er yfir lögaldri. Staðfesti hann sjálf­ur fæðing­ar­dag­inn sem gef­inn er upp í vega­bréf­inu í viðtali hjá Útlend­inga­stofn­un. Stofn­un­in staðfest­ir einnig þess­ar upp­lýs­ing­ar,“ segir orðrétt í frétt Mbl.is. 

Klukkan 15:20 sendi loks Útlendinga­stofnun út frétta­tilkynningu þar sem segir orðrétt: „Í fjöl­miðlum hefur því verið haldið fram að annar umsækjendanna sé 16 ára gamall og því barn að aldri. Þetta er ekki rétt. Mennirnir eru báðir eldri en átján ára. Þetta sýna fyrir­liggjandi gögn í málinu auk fram­burðar mannanna fyrir stjórn­völdum þar sem þeir staðfestu aldur sinn.“

Lögfræðingar sem Stundin hefur rætt við furða sig á að Útlendinga­stofnun gefi fjöl­miðlum upp upplýsingar um vegabréf hælis­leitenda, það hvað komið hefur fram í viðtölum við þá og málsgögn úr hælis­málum. 

Löng ferð að baki

Ali og Majed voru dregnir með valdi út úr Laugar­neskirkju síðustu nótt. Við kirkju­tröppurnar tóku tveir lögreglu­mannanna sér stöðu og hand­járnuðu Ali. Þegar vinur hans beygði sig yfir hann og benti lögreglu­mönnunum á að Ali væri aðeins sextán ára gamall sló annar lögreglu­mannanna hann í andlitið. Síðan ýttu lögreglu­mennirnir Ali niður kirkju­tröppurnar í hand­járnum og þrýstu honum inn í lögreglubíl þar sem hann brast í grát. 

Fram kom í samtali Stundarinnar við Ali að hann hefði alist upp í Bagdad en yfirgefið Írak og haldið til Evrópu í leit að betri framtíð. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa farið á yfir­setnum bátum yfir Miðjarðar­hafið frá Tyrklandi til Grikk­lands og gengið svo þvert yfir meginland Evrópu.

Horfðu á leikinn áður en þeir bjuggu sig til brottfarar

Ali og Majed lýstu því ófremdar­ástandi sem ríkir í Írak. Ali nefndi sem dæmi að fyrir nokkrum árum hefði honum verið rænt af vopnuðum mönnum, keyrt með hann út úr borginni og foreldrar hans krafðir um lausnar­gjald. Faðir hans hefði selt helstu eignir fjöl­skyldunnar til að geta greitt það. Majed segist hafa starfað sem lögreglu­maður í Írak og meðal annars flúið vegna ítrekaðra hótana sem hann varð fyrir.

Ali og Majed óttast að norsk stjórn­völd sendi þá aftur heim til Írak. Þeim líður vel á Íslandi og segja að hér sé fólk vingjarnlegt og minna um rasisma en víða annars staðar í Evrópu. Þeir vörðu síðusta kvöldinu sínu á Íslandi í að horfa á fótbolta­leikinn milli Íslands og Englands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár