Telja þörf á að endurskoða ákvarðanir um hámarksverð lyfja

Í nýrri skýrslu eru rekstr­ar­skil­yrði íslenskra lyfja­fyr­ir­tækja sögð hafa farið hríð­versn­andi síð­asta ára­tug­inn. Því er velt upp hvort end­ur­skoða beri að hámarks­verð lyfja mið­ist við lægsta verð á Norð­ur­löndum.

Skoða hvort hækka beri hámarksverð
Skoða hvort hækka beri hámarks­verð Í nýrri skýrslu um lyfja­mark­að­inn á Íslandi er því velt upp hvort þörf sé á að end­ur­skoða fyr­ir­komu­lag ákvarð­ana um hámarks­verð lyfja. Mynd: Shutterstock

Ríkið er ráð­andi aðili á kaup­mark­aði lyfja á Íslandi en setur á sama tíma allt reglu­verk sem mark­að­ur­inn þarf að fara eftir, þar með talið lyfja­verð. Rekstr­ar­af­koma þjón­ustu­fyr­ir­tækja á lyfja­mark­aði er langt frá því að vera eðli­leg þegar horft er til lyf­seð­il­skyldra lyfja og svo­kall­aðra sömerktra lyfja, sem einkum eru sér­hæfð lyf sem notuð eru á sjúkra­húsum. „Ef svo fer fram sem horfir gæti það leitt til þess að rekstr­ar­grund­völlur þeirra sé ekki lengur til staðar,“ segir í nýrri skýrslu.

Skýrslan er unnin af ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­inu Intellecon fyrir Frumtak, sam­tök frum­lyfja­fram­leið­enda á Íslandi. Í skýrsl­unni kemur fram að á Íslandi sé mark­aður með lyf svo­kall­aður ein­keypismark­aður, mark­aður þar sem einn kaup­andi er ráð­andi, og er það íslenska ríkið sem um ræðir. Á ein­keppn­is­mark­aði getur kaup­and­inn ákvarðað verð þannig að hag­fræði­legur ábati selj­anda verði lít­ill sem eng­inn.

„Ef svo fer fram sem horfir gæti það leitt til þess að rekstr­ar­grund­völlur þeirra sé ekki lengur til staðar“

Í umræddri skýrslu kemur fram að slík staða sé að verða uppi þegar horft er til lyf­seð­il­skyldra lyfja og s-merktra lyfja. Þar segir að vís­bend­ingar séu um að rekstr­ar­af­koma vegna þjón­ustu með umrædd lyf hafi farið mjög versn­andi upp á síðkastið, sé langt undir því sem eðli­legt geti talist og sé komin að þol­mörkum. Fari svo fram sem horfir gæti það leitt til þess að rekstr­ar­grund­völlur fyr­ir­tækj­anna verði ekki lengur til staðar, með þeim afleið­ingum að hið opin­bera yrði sjálft að taka yfir hlut­verk þeirra. Slíkt gæti orðið bæði flókið og kostn­að­ar­samt.

Í skýrsl­unni er því velt upp hvort tíma­bært sé að end­ur­skoða fyr­ir­komu­lag ákvarð­ana um hámarks­verð leyf­is­skyldra lyfja í heild­sölu og hætta að miða almennt við lægsta verð á Norð­ur­löndum. „Íslenski mark­að­ur­inn er örsmár í þeim sam­an­burði og kostn­aður við inn­flutn­ing og þjón­ustu að stórum hluta óháður stærð mark­að­ar­ins sem gerir slíkan sam­an­burð að mörgu leyti ójafnan.“ Aðrar leiðir séu færar til að tryggja lágt lyfja­verð á sama tíma og upp­fyllt séu skil­yrði laga um nægi­legt fram­boð nauð­syn­legra lyfja.“

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár